Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Side 93

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Side 93
ÉG ER AÐ BLAÐA í BÓK fram I)ó að' fár og lieift forlagavaldsins blinda byltist niðri við bjargsins dyr þar sem brimbverinn sýður. Ekki fer þetta litla ljóð dult með tengsl sín við Egil Skallagríinsson, sem hlóð að því hverri líkingunni annarri snjallari, hversu tregt honum var um skáld- legt tungutak, þegar honum var dimmast í hug. Sjálft heiti ljóðsins er látið taka af skarið, að það stendur rótum einmitt í sjálfu Sonatorreki. Og vert er að veita því athygli, að um leið birtir það nýjan skilning á orðum Egils í síð- ara helmingi 3. vísu: Jötuns hals undir þjóta Náins niðr fyr naustdyrum. En að sjálfsögðu er ljóð Snorra þó ort til annars fremur en vera skýring á orðum Egils. Og endaþótt upphafslínurnar segi dvergaskipið bíða í þagnar- skorðum, þá er einbeitni ljóðsins svo hiklaus og traust í senn, að aðdáun vek- ur. Og nú fletti ég uppá hinu mikla kvæði Hamlet, þar sem hikandi íhyglin heggur loks á hnút sinnar eigin geðflækju. Þó að jafnaði sé til lítils að gera næstu kynslóðum upp smekk og mat á kveðskap samtímans, þarf litla dirfsku til að ætla þessu snilldarkvæði veglegan stað í bragartúni um svo langa fram- tíð sem augað þykist eygja. Bragur kvæðisins er frábær. Erindin tengjast hvert öðru með margslungnu rími, ýmist alrími eða hálfrími, sem ýmist spennir yfir tvö eða þrjú erindi með síbreytilegum hætti. Kvæðið er ort á öfugum tvíliðum, en sú hrynjandi er hæfilega rofin með einum þrílið í línu annað veifið, og jafnan þannig að efninu er að betur eftir fylgt. Hamlet bíður. Hinn ungi rík- iserfingi stendur einn gegn vélráðum þessa heims; líf hans og allt sem honum er kært og heilagt er ofurselt slægð hins krýnda frænda hans, bróðurbanans; þjóð hans er lostin blindu; fláráð hirð, gráðugir svelgir auðs og valds, sitja um breytni hans og hug. En í eyrum hans loðir föðurleg rödd, ógn og harmi brýnd; geigur hans og grunur hvíslast á. Hamlet hikar um sinn. Kvæðið er frábært að málfegurð, myndlist og dramatiskri reisn. Hamlet bíður. Rökkrið grípur glitvoð dagsins og rekur hana upp í rauðar trefjar og gráan skugga- 83
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.