Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Síða 103

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Síða 103
TÍU ÁRA KALT STRÍÐ rctt dýranna. — f tíu ár licfur vestræn, kristin menning liáð kalt stríð til þcss að' kýrnar í Bandaríkjunum mættu fá að drekka mjólkina úr sjálfum sér. Til þessa veizlufagnaðar í bandarískum f jósum hefur guðs eigið land eytt á fimm fyrstu árunum eftir heimsstyrjöldina 100 milljörðum doll- ara í lán, gjafir og vígbúnað, sprengt vetn- issprengjur, sviðið hálfan Kóreuskagann, byggt flugvelli á hverju kríuskeri hnattar- ins. Já, mér er spurn: hvar væri mannkynið statt, ef ekki væri þessi fnrðulega hringrás mjólkurinnar í Bandaríkjunum? En nú skulum við kveðja kýrnar um stund og athuga nánar athafnir og hug- myndir þessara dýravina sem lagt hafa á sig svo mikið erfiði við að vernda og útbreiða meginreglur hins ameríska hagkerfis. Trúboðar og víkingar Þegar heimsstyrjöldinni lauk mátti sjá þess ýmis merki, að Bandaríkin ætluðu sér ekki lítinn hlut í þessum heimi. Þau urðu gripin einhverjum trúboðatryllingi, blaða- menn, atvinnurekendur og stjórnmálamenn Bandarfkjanna fóru út á meðal allra þjóða og skírðu þær f nafni dollarans, frjálsa framtaksins og lýðræðisins af amerískri gerð. Þessir hávaðasömu og ærslafengu trú- boðar amerískra lífshátta fóru um allar jarðir og buðust til að bjarga tímanlegri og eilífri velferð manna, ríkra og snauðra, alla vildu þeir lækna, einnig þá, sem kenndu sér einskis meins, og ef ekki vildi betur buðust þeir til að fóðra kýrnar þeirra á þurrmjólk. Þessir athafnasömu menn, sem leyst höfðu svo vel af hendi vandamál sjálfra sín í skemmu og fjósi, töldu sig hafa fengið þá köllun að stjóma heiminum — minna mátti ekki gagn gera. Bandaríska stórblaðið New York Times boðaði hið ameríska fagnaðarerindi, 23. marz 1947, á þessa leið: „Vandamálið er í því fólgið, að stjórn okkar á heiminum sé svo vel af hendi leyst, að upp frá þessu verði enginn vafi á því, að lýðræði og frjálst framtak sé sú bezta lífshraut, sem Iiægt sé að bjóða al- menningi í heiminum" Um líkt leyti flutti einn af auðjöfram Standard Oil-félagsins boðskapinn með þessum orðum: „Það er skylda vor að hafa á hendi leiðsögu í vanda- málum heimsins — pólitískum, félagslegum og atvinnulegum, og vér verðum að rækja þessa skyldu í fyllsta skilningi þess orðs. Vér erum mesti framleiðandi í heimi, gjöf- ulasta auðsuppsprettan ... og þess vegna verðum vér að ákveða hraðann sjálfir, og í þessu fyrirtæki, sem kunnugt er undir nafn- inu heimur, verðum vér að taka á oss ábyrgð þess hluthafa, sem hefur meirihluta verð- bréfanna í hendinni ... Og þessi skylda er oss ekki lögð á herðar um stundarsakir. Þetta er skylda, sem vér megum aldrei velta af oss.“ Truman, fyrrum forseti, dró þá ekki heldur úr hlutverki Bandaríkjanna: „Ifeimurinn bíður eftir leiðsögn vorri.“ ... „Þjóðir jarðarinnar vænta af Bandaríkjun- um góðvildar, styrks og viturlegrar forustu." ... „Bandarikjaþjóðin mun gegna forustu- hlutverki í rás viðburðanna" o. s. frv. o. s. frv. Þótt þessi boðskapur sé túlkaður með ýmsum hætti, þá er efni hans allt af sömu gerð: heimsdrottnun Bandnríkjcmna. Heim- urinn er bara hlutafélag, Bandaríkin eru stærsti hluthafinn og samkvæmt öllum regl- um á hann ekki aðeins að hirða arðinn af verðbréfum sfnum, heldur einnig að stjórna rekstri og stefnu félagsins — allt annað er óamerískt og varðar við lög. Það er gamall sannleikur, jafngamall víking á höfum úti, að kóngur vill sigla, en byr hlýtur ráða. Bandaríska gnoðin er að vísu frítt skip, en höf þessa heims eru mikil og viðsjál, stundum verður vart háhyrninga í kjölfarinu, stundum eru hinar særoknu hetjur bandarískra heimsvalda líka dálítið 93 L
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.