Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Side 106

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Side 106
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAU brezka og bamlaríska stjórnin lókn að' ganga á gerða samninga og spilla ]jví sam- komulagi, er náðst hafði. Fyrst í stað urðu vesturveldin þó að fara sér hægt, því að enn var styrjöldinni ekki lokið og enginn vissi, hve lengi Japanar mundu verjast. En það leyndi sér ekki hvert krókurinn beygð- ist. Á San Franciscoráðstefnunni í maímán- uði 1945, þegar samtök Sameinuðu þjóð- anna voru stofnuð, sagði Harriman sendi- herra Bandaríkjanna í Moskvu, er liann ræddi við blaðamenn, að hann hefði „kom- izt að þeirri niðurstöðu, að ósættanlegar andstæður ríktu, þegar til lengdar léti, milli Bretlands og Bandaríkjanna annars vegar og Rússlands hins vegar.“ Þegar slíkt var hugarfar bandarískra sendiherra. þá var þess varla að vænta, að bandarískir hershöfðingjar væru bjartsýnni á friðsam- lega sambúð hins vestræna og austræna stórveldis. Arnold hershöfðingi og ráðu- nautur hinna bandarísku samningamanna í Potsdam segir frá því í endurminningum sínum, að hann hafi átt tal við Portal, hinn brezka flugmarskálk. Báðir þessir engilsax- nesku stríðsmenn voru á einu máli um það, að Rússland yrði sá óvinurinn, er þeir mundu næst eiga fangbrögð við. Einnig kom þeim saman um, að Rússar bæru tölu- vert skyn á landher, en hins vegar óttuðust þeir mjög langfleygar flugvélar. Að þessum bollaleggingum loknum urðu hershöfðingj- arnir ásáttir um, „að vér verðum að eiga vígstöðvar svo staðsettar um allan hnött- inn, að vér getum komizt að hverju því skotmarki, sem oss yrði falið að hæfa.“ 011 stefna Bandaríkjanna í kalda stríðinu var þegar mörkuð og ákveðin á Potsdam- ráðstefnunni, Það virðist ekki hafa flögrað að Bandaríkjastjórn að halda orð sín og eiða við hinn rússneska samningsaðila, enda urðu allar pólitískar aðgerðir hennar óslitin samningsrof. Bandaríkin á krossgötum Þegar styrjöldinni lauk síðsumars 1945 ríkti mikill fögnuður um heim allan. Banda- ríkjaþing var kvatt til skyndifundar í tilefni af sigrinum, og 6. september flutti Tru- man forseti því boðskap sinn: „Þingið kemur saman á mikilli hættu- stund. Styrjöldinni lauk skjótar en flesta okkar grunaði. Víðtækar hergagnapantanir hafa þegar verið afturkallaðar ... Þetta hefur eðlilega valdið nokkrum ugg og ótta.“ Verstu fjandmenn Bandaríkjanna gælu ekki túlkað miskunnarlausar hið sanna eðli hins bandaríska þjóðfélags en forsetinn gerði á degi sigursins: Á þeirri stundu, er blóðþoku styrjaldarinnar létti og mannkyn- ið mátti sjá roða af nýjum friðardegi, nötr- uðu allir kjörviðir hins kapítalíska þjóðfé- lags í Vesturheimi. FriSaróttinn — peace scare — var að vísu orð, sem var ekki enn orðið Bandaríkjamönnum tungutamt, Kór- eustyröldin átti eftir að bæta því við orða- forða þessarar kynslóðar, en óttinn við frið- inn markaði allan sigurboðskap Trumans forseta, óttinn við friðinn læsti sig um allt hið bandaríska þjóðfélag og fór eins og skæð sóttkveikja um æðar þess og taugar. Friðarótti Bandaríkjanna var aðeins annað orð yfir sama hugtak: óttann við allsnægta- kreppuna. í heilan áratug, 1929—1939, höfðu Bandaríkin barizt við þessa kreppu, en með undarlega litlum árangri. Styrjöldin fékk loks grynnt á atvinnuleysinu, brotið höml- urnar af framleiðsluöflunum og tæmt forðabúrin. Bandaríska stórauðvaldinu þótti góður stríðsgróði sinn, en hvaða gróðavonir bar friðurinn í skauti sér? Á degi sigursins stóðu Bandaríkin á ör- lagaríkustu krossgötum sögu sinnar. Þau áttu um tvo kosti að velja til þess að leysa efnahagsleg vandamál, sem stríðslokin báru þeim á hendur. Annar var sá að auka innan- landsmarkaðinn með stórfelldum félagsleg- 96
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.