Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Page 107

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1955, Page 107
TÍU ÁRA KALT STRÍÐ um umbótum, almannatryggingum, stór- bættum lífskjörum alþýffu og risavöxnum opinberum framkvæmdum; ennfremur meff því að hefja vífftæk viffskipti viff Ráffstjórn- arríkin og alþýðuríkin og styrkja affrar þurfandi þjóðir til atvinnulegrar viðreisnar samkvæmt óbrotnum grundvallarreglum viðskiptalífsins. Hinn kosturinn var sá, að lialda styrjaldarframleiðslunni áfram, eins og ekkert hefði ískorizt, eins og ófriður væri enn uppi í veröldinni, m. ö. o. að framleiða fyrir markað kalda stríSsins. Bandaríkin völdu hinn síðari kostinn. Yfir- stétt Bandaríkjanna kaus þá leiðina, sem henni þótti greiðfærust: að veita flóði fram- leiðslu sinnar, sem hún ræður ekki lengur við, inn í birgffaskemmur þriðju heimsstyrj- aldarinnar, í hina botnlausu hít kalda stríffsins. Fimmtán árum áður hafffi þessi sama yf- irstétt Bandaríkjanna staffið eins og ráð- þrota fáviti frammi fyrir efnahagsfyrirbær- um þjóðskipulags síns. Hún hafði ekki botnað upp né niður í sigurverki kapítal- ismans og einkaframtaksins. Hið ameríska auðvaldsskipulag virtist hafa sungið sitt síðasta lag, líkt og gervinæturgalinn i ævin- týri Andersens, og heimsins lærffustu úr- smiðir fengu ekki komið kólfinum af stað. En þá kom blessað stríðið! Heimsstyrj- öldin síðari drap töfrasprota sínum á hiff aldna hrör hins ameríska framleiffsluskipu- lags, og sjá: þaff tók aftur hreysti sína og æskulit. Upp úr val styrjaldarinnar spruttu lífgrös hins bandaríska auðvalds. En jafn- skjótt og sjá mátti fyrir lok þessarar styrj- aldar, tók að bera á þeim „ugg og ótta“, sem Truman forseti minntist á í boðskap sínum til Bandaríkjaþings. Mundu ekki lífgrös hins bandaríska framleiðsluskipulags sölna og deyja, þegar dögg stríðsins fékk ekki lengur vökvað þau? Þessi spuming leitaði á forráðamenn Bandaríkjanna í svefni og vöku. Þeim var það fyllilega ljóst, að banda- ríska auðvaldsskipulagið mundi verða að stríðinu loknu að ganga undir próf, sem réð úrslitum um tilveru þess og tilverurétt. Ef viðskiptakreppa mundi aftur leggjast að landi í Bandaríkjunum, þá var ekki aðeins amerískum lífsháttum voði búinn, heldur einnig öllu því, sem sæmt er nafninu „vest- ræn menning“. I júnímánuði 1947 skrifaði innanríkisráðherra Bandaríkjanna, J. A. Krug, í American Magazine: „Ef vér verff- um aff þola aðra alvarlega atvinnukreppu ..., þá munu atvinnuleysi, armóður og ör- vænting hrekja fleiri Ameríkumenn inn í herbúðir kommúnismans en Stalín, Marx og Komintern hafa náff á sitt band meff rök- semdum og fortölum." Þegar stríðinu lauk voru forráðamenn Bandaríkjanna því ekki í neinum vafa um þaff, aff þeir mundu verða að glíma við vandamál lífs eða dauða auðvaldsskipulags- ins, jafnt heima fyrir sem erlendis. Svo sem fyrr var sagt, áttu þeir kost á því að leysa þessi vandamál að vissu marki með því að sætta sig viff friffsamlega sambúð auðvalds og sósíalisma á hnettinum. Sú hafði veriff ætlun Roosevelts forseta og þeirra áhrifa- manna, sem honum voru handgengnir. En hinir nýju valdamenn kusu ekki þann kost- inn. Þeir stefndu inn á braut bandarískra heimsvalda í orðsins fyllstu merkingu. Þeir ætluðu að sveigja allan heiminn undir veld- issprota Bandaríkjanna og beizluðu fram- leiðslumátt þeirra og fjármálavald í þjón- ustu þessa markmiðs. Afleiðingar þessarar taumlausu ofbeldisstefnu koma æ skýrar í ljós. Ávöxturinn er svo sem til var sáð. Á helvegi kalda stríðsins Hið bandaríska framleiffsluskipulag og hin óleystu vandamál þess eru sá jarðvegur, sem drekasæði kalda stríðsins hefur sprott- ið í. Marshalláætlunin svonefnda var fyrsta viðleitni bandarískra valdamanna til að TÍMAHIT MÁLS OG MENNINCAR 97 7
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.