Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Side 12

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Side 12
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR rásarlið og kaus miklu fremur að beita vopnunum gegn kínverskum kommúnistum. Þegar sú staðreynd er höfð í huga, að kommúnistarnir höfðu einmitt forystuna um andstöð- una gegn Japönum og beittu til þess öllum herstyrk sínum (að undan- skildum heim herafla sem nota varð til að verjast hinum sífelldu ásóknum Sjang Kæ-sjeks), kemur skýrt í ljós hverskonar „þjóðernissinni“ hann var og hverra hagsmuna hann gætti. Leiðtogar kínverskra kommúnista verða ekki sakaðir um að hafa alið á óvildinni. Hvað eftir annað sendu þeir Sjang Kæ-sjek tilboð um vopna- hlé, svo að báðir aðilar gætu einbeitt sér að því brýna verkefni að hrekja Japana úr landi. En Sjang Kæ-sjek herti einungis sóknina gegn kommún- istum. Það var ekki fyrr en þeir höfðu sjálft líf hans í hendi sér (ein her- sveita hans hafði gert uppreisn, tekið hann höndum og kvatt til leiðtoga kommúnista að úrskurða hvað við hann ætti að gera), að hann féllst á að taka upp sameiginlega vörn gegn Jap- önum. Og þó hélt hann áfram að leika tveim skjöldum. Hann sendi að vísu nokkurn hluta hersins gegn Japönum, en lét meginhlutann bíða átekta. Tvisvar hóf hann leynilegar samn- ingaumleitanir við Japana. Hið fyrra sinnið með milligöngu Þjóðverja, 1937. Hið síðara sinnið, 1938, sendi hann eigin samningamenn til Tokíó. Á öndverðu ári 1939 hætti hann svo allri mótspyrnu gegn Japönum. Hon- um var í mun að þeir gætu beitt öll- um herafla sínum gegn alþýðuher kommúnista, sem stóð andspænis jap- önsku herjunum. Sjálfur hóf hann nú aftur að senda herleiðangra til komm- únistahéraðanna. Ástæðan fyrir þessari stefnubreyt- ingu átti meðal annars rætur að rekja til þróunar mála í Evrópu. Viðgangur Oxulveldanna og sigrar þeirra í upp- hafi styrjaldarinnar leiddu í ljós að Sjang Kæ-sjek var jafn reiðubúinn að svíkja Breta og Bandaríkjamenn, ef nauðsyn krefði, og hann hafði áður fúslega gengið erinda þeirra við að svíkja sína eigin þjóð. Strax eftir fall Frakklands hóf hann leynimakk við japönsk stjórnarvöld. Þegar styrjöldin stóð sem hæst átti Matsuoka, utanrík- isráðherra Japans, tal við þýzka naz- istaráðherrann von Ribbentrop um „Sjang Kæ-sjek, sem hann stæði í persónulegu sambandi við og þekkti og treysti“ (Skjal Aufz. RAM 1941, 29. marz 1941, úr þýzka utanríkis- ráðuneytinu, fundið og birt af Banda- ríkjastjórn). Eftir árás Japana á Pearl Harbour ók Sjang Kæ-sjek seglum eftir vindi. Bandaríkin sögðu Japönum stríð á hendur og Sjang fylgdi dæmi þeirra í þeirri trú að nú væru úrslit heims- styrjaldarinnar ráðin. En 1942—43 vann Japan mikla sigra á Kyrrahafi yfir Bretum og Bandaríkjamönnum, 170

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.