Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Síða 19
SAGA VESTRÆNNAR ÍHLUTUNAR í KÍNA
Sem sé létu Bandaríkjamenn Kuo-
mintang-einvaldanum í té flugvélar,
skriðdreka og önnur nýtízku vopn,
auk milljarða dollara, til að hann gæti
gengið sem rösklegast fram við að
brytja niður kínverska alþýðu. Hér
skulu tilfærð nokkur dæmi um það,
hverju Bandaríkjastjóm kostaði til í
þessu skyni. (Heimild: U. S. rela-
tions).
Frá öðrum september 1945 til 2.
marz 1946 afhenti hún Sjang Kæ-sjek
fallbyssur og annan stórskotaliðsút-
búnað fyrir 17.666.929,70 dollara.
Frá tímabilinu júní 1946 til jafn-
lengdar 1948 er þessi ógoldni reikn-
ingur:
Fallbyssur og stórskotaliðs-
útbúnaður
Flugvélar og flugvélahlutar
Skriðdr. og önnur farartæki
Skip og aðrir farkostir
Ymiskonar hernaðarútbún.
Landbún.- og iðnaðarvörur
Ymiskonar þjónusta
Dollarar
117.869.076,94
43.683.604,63
96.009.610,08
49.940.642,57
99.762.611.71
37.918.928,21
335.856.448,18
Alls 781.040.922,32
Frá sama tímabili eru fleiri ógoldn-
ir hundruðmilljónareikningar, sem
ekki er rúm til að rekja hér. En ljóst
er, að bandarísk stjórnarvöld hafa
lagt fram tugmilljarða dollara til
stuðnings Sjang Kæ-sjek-stjórninni,
frá því að styrjöldin við Japan hófst
í desember 1941 og fram til 1949.
Þegar tillit er tekið til þess, að Sjang
Kæ-sjek beitti svo til öllum vopna- og
fjárstuðningi Bandaríkjanna gegn al-
þýðuherjunum (í stað þess að berjast
við Japana) má komast svo að orði
með fullri sanngirni, að tugmilljörð-
um Bandaríkjadollara hafi verið var-
ið til að kæfa frelsishreyfingu kín-
versku þjóðarinnar í blóði.
En allt kom fyrir ekki.
„Aðeins með erlendri hernaðar-
íhlutun á borð við innrás Japana má
Sjang ef til vill takast að sigrast á
kommúnistum. En jafn umfangs-
mikil hernaðaríhlutun virðist ekki
koma til mála. Samt mun general-
issimóinn ekki skirrast við að hrinda
Kína út í nýja borgarastyrjöld með
hugdeigar og blauðar hersveitir, úr-
kynjaða og gjörspillta skriffinnsku-
stjórn og þá laumulegu erlendu að-
stoð, sem hann getur hlotið, að bak-
hjarli. En honum tekst aldrei það, sem
Japönum mistókst þrátt fyrir sjö ára
þrotlausa baráttu. Kommúnistarnir
eru honum ofurefli ... Þeir verða
ekki hraktir úr Kína. Þeir, en ekki
Sjang Kæ-sjek, hafa örlög Kína í
hendi sér“ (U. S. relations).
Ugglaust hefði Bandaríkjastjórn
einnig haft þessa skorinorðu skýrslu
erindreka sinna að engu og hafið stór-
fellda innrás í Kína, ef Sovétríkjanna
hefði ekki notið við, og þó einkum
þeirrar pólitísku nauðsynjar að sigla
undir fölsku flaggi vegna tilvistar
þeirra. Hinsvegar efldi hún borgara-
styrjöldina með ráðum og dáð — bak
við tjöldin.
En kaldhæðnislegt má það vera fyr-
TÍMARIT MÁLS OC MENNINCAl!
177
12