Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Síða 25
SAGA VESTRÆNNAR ÍHLUTUNAR í KÍNA
lagt. Þegar vestræn blöð tala um „hið
herskáa Kína“ er það þessi her sem
þau eiga við — og óttast (Annan her
sá ég ekki, utan nokkra óhermennsku-
lega hermenn sem unnu að járnbraut-
arlagningu utan við Peking).
Það fór engin hersýning fram á 11.
afmælisdegi lýðveldisins 1960. Skrúð-
ganga fólksins framhjá Musteri him-
insins var eins friðsamleg og frekast
varð á kosið. Ef hún var herská, þá
kom það einungis fram í því að heitið
var að sótt skyldi fram til enn meiri
afkasta, enn meiri farsældar kín-
verskrar alþýðu. í tæpa tvo tíma
streymdi fylkingin framhjá: blóm,
korn, hrísgrjón, ávextir, húsdýr, vél-
ar, og brosleit andlit þessa fólks sem
hafði uppskorið frelsið og ávexti
frelsisins fyrir sinn eigin mátt, og sitt
eigið friðsama starf.
En skammt undan Kínaströndum
eru eyjarnar Quemoy og Matsu og
Formósa, víghreiður Bandaríkjanna.
Þar ríkir Sjang Kæ-sjek enn í krafti
dollaravaldsins og Sameinuðu þjóð-
anna sem „forseti hins frjálsa Kína“
og lýsir Jrví yfir einu sinni á ári (sein-
ast fyrir tveim vikum), að nú nálgist
sú stund óðfluga að hersveitir hans
gangi á land og alþýðurikinu verði
sundrað. Kínversk alþýða verður að
vinna þrekvirki sín í miði eldflaugna
hans og flugflota, með ógnanir banda-
rískra tortímingarvopna vofandi yfir
höfði sér.
Það hlýtur að vera krafa allra heið-
virðra manna sem þekkja píslarsögu
Kínverja og vita hvaða ógnanir
Bandaríkjamenn hafa í frammi við
þá enn í dag, að þeir fái að byggja
Iand sitt upp í friði. Réttur Kínverska
alþýðulýðveldisins til sætis meðal
Sameinuðu þjóðanna er jafn óve-
fengjanlegur og leppstjórn Sjangs er
þar augljós boðflenna. Hver sú ríkis-
stjórn, sem ekki viðurkennir þennan
rétt, afhjúpar um leið sjálfa sig sem
fylgjanda ólýðræðislegrar valdbeit-
ingar og stríðsæsinga.
Ríkisstjórn íslands liggur undir
þeim grun, að hún aðhyllist ofbeldis-
sjónarmið Bandaríkjanna, meðan
hún situr hjá við atkvæðagreiðslur
um aðild Kína að Sameinuðu þjóð-
unum. Endaþótt núverandi ríkisstjórn
sé greinilega afturhaldssöm mætti
ætla að hún vildi losna við þær grun-
semdir. Fylgjumst því vel með af-
stöðu fulltrúa hennar á næsta alls-
herjarþingi — og hermum upp á hana
svikin við málstað lýðræðisins ef hún
gloprar niður atkvæði sínu enn einu
sinni.
Lokið 9. febrúar 1961
Frumsamið, endursagl og þýtt úr bók
Israels Epsteins: „From Opiumwar to Libe-
ration", Peking 1956, og skýrslu Banda-
ríkjastjómar: „United States relations with
China“, Washington 1949.
183