Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Side 30

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Side 30
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR skeleggur: — Að því þurfum við að komast, eins og ég sagði. JÓNMUNDUR: — Og þykistu hafa fundið ráð til þess? SKELEGGUR, gengur til hœgri: — Hvað þýðir að vera skorinorður, fyrst þú ert með hugann annars staðar ? jónmundur: — Ég er með hugann hvergi nema hér; vínið gerir mann sveim- huga. Hann gengur jram vinstra megin. SKELEGGUR: — Sjáðu til: ég hef þegar leitt í ljós að eina ráðið er að taka innan úr honum, rannsaka hjartað og nýrun, og viðbeinið . .. jónmundur: — Allt neðan þindar er einkamál. skeleggur: — ... þetta litla merkilega bein sem bindur líkamann saman .. . JÓNMUNDUR: — Mér heyrðist þú segja lífbeinið! SKELEGGUR: — Ég sagði viðbeinið. JÓNMUNDUR: — Já, það er ofan þindar. skeleggur : — Það er ekkert einkamál. jónmundur: — Ekki frekar en skoðanirnar! skeleggur: — Það er ... alþjóðlegt ... JÓNMUNDUR: — Lögun þess já, notkun þess . .. SKELEGGUR: — ... þjóðleg . . .? jónmundur : — Já, eða óþjóðleg. skeleggur: — Ha, ha, ha. Hann lyflir glasinu. Skál. JÓNMUNDUR: — Mundum við þá ekki þarfnast skurðlæknis? skeleggur: — Ég meina þetta, auðvitað, óeiginlega. JÓNMUNDUR, lyftir glasinu: -— Skál. JASPIS, lítur snögglega upp: — Madömuna dreymdi draum. Ég held hún hafi sofið, hún segist hafa verið vakandi. Draumar, jafnvel í vöku, geta verið minnisverð tíðindi, ekki satt? Aldrei dreymir vallarstarfsmenn. Það hefur sagt mér maður. Það sýnir að það er ekki sama hvar maður sefur. Það er jafnvel ekki sama hvort maður sefur á hörðu eða linu, hvort maður hefur handlegginn undir höfðinu eða niður með síðunni. Mataræðið hefur líka sitt að segja. Og hugrenningarnar. Já. Madaman hafði lagt sig inní stofu, þið munið eftir glugganum sem veit út í garðinn. Allt í einu heyrir hún þrusk. Hún rís upp og það var . . . það var hönd á glugganum. Hönd af manni. Höndin strauk eftir rúðunni (Hann líkir eftir hreyjingum handar- innar, með útspennta fingur.) hægt og mjúklega, jafn eðilega og þegar fólk dr... dregur andann, eða ... dottar. Þá skildi Madaman að höndin var að skrifa á rúðuna. Hann kreppir alla fingur nema vísifingur. Höndin skrifaði 188

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.