Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Side 32

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Side 32
TIMARIT MALS OG MENNINGAR súrt slátur. Frambjóðandinn seildist eftir sneið, en í umræðuhitanum — þeir voru að tala um vegalagningu — gleymist honum að hann hafði náð sér í sneið. Hann heldur á sneiðinni á gaffaloddinum, svona! og nú slær hann í borðið, i ákafa umræðunnar, svona! Og . . . hvert haldið þið að sneiðin hafi farið? Þögn. Þeir horfa á hann. JASPis: — Upp í hreppstjórann. JÓNMUNDUR: — Hvaða hreppstjóra? jaspis: — Hreppstjórann! JÓNMUNDUR: — Stórbóndinn var ekki hreppstjóri. jaspis: — Nú?! JÓNMUNDUR: — Hann var oddviti. SKELEGGUR, horfir jram: — Fulltrúar í málsmetandi stofnunum þekkja mun á hreppstjórum og oddvitum. Þögn. jaspis: — Hvert fór þá sneiðin? jónmundur: — Oní... JASPIS, ákajur: — Oní hafragrautardiskinn. JÓNMUNDUR: — Elskan mín, það mundi ekki vera fyndið: þangað átti hún að fara í rauninni. JASPIS, lágt: — Ég átti við disk .. . húsráðandans. SKELEGGUR, horfir jram: — Húsráðendur til sveita kallast bændur. JÓNMUNDUR, blátt ájram: — Sneiðin fór oní mjólkurkönnuna. Hann lítur til þeirra. jónmundur: — Sneiðin fór oní blárósóttu mjólkurkönnuna. Þeir hlœja allir þrír hátt og jafn lengi. jónmundur, við Jaspis: — Þetta er sko fyndið. SKELEGGUR, við Jaspis: — Hvað varstu svo að væna mig um gleymsku. JASPIS: — Ég? ... SKELEGGUR: — Já þú. Ég heimta skýringu. jaspis: — Madaman snýr sér enn til veggjar. skeleggur: — Og hvað kemur það vöskum við? JASPIS: — Ég hef ekki enn fengið vaskana. SKELEGGUR: — Ah, nú man ég það. Þú impraðir á því í fyrri viku. Ég gaf þér gott orð. JASPis: — Mig vantar yfirfærsluleyfi. skeleggur: — Mundi, þú heyrir það: hann er í nauðum. 190

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.