Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Blaðsíða 38
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
JÓNMUNDUR: — Ég hef lesið sögu lands míns. Við höfum aldrei sótt stoltið í
askana.
skeleggur: — Hordauðinn var nú líka algengur.
jónmundur: — Hordauðinn orsakaðist miklu fremur af verzlunarhöftum og
óáran en lærdómi. Lœgra. Vertu nú ekki afbrýðisamur.
SKELEGGUR: — Ég lít á staðreyndirnar. Þeir sem læra grammatík draga ekki
fisk.
jónmundur: — Grammatíkin hefur verið mér hlíf í pólitíkinni.
SKELEGGUR: — Nú skilst manni hvers vegna Flokkurinn tapar fylgi!
jónmundur: — Fylgi Flokksins eykst.
SKELEGGUR: — Tapaði hann ekki íylgi í seinustu kosningum?
jónmundur: — Atkvæðamagnið var meira, þó prósenttalan lækkaði.
skeleggur : — Þingmönnunum fækkaði.
jónmundur: — Vegna breyttra kosningalaga!
SKELEGGUR: — Hjátrúarfulli auðnuleysingi.
jÓnmundur: — Kúgaða manngerpi.
skeleggur: — Þú flaggar yfir eigin hundaheppni.
jónmundur: — Þú gyllir brama þinn fyrir lýðnum.
skeleggur: —Bu!
loki, fœrist nœr þeim: — Sussu, sussu!
jónmundur: — Ba!
JASPIS, hefur hlaupiS inn í liœgra hornið (hann er haltur), og hringir bjöll-
unni: — Hljóð í salnum!
skeleggur, við Jónmund: — Irr!
loki: — Gætið tungu yðar, herrar mínir.
JÓNMUNDUR, við Skelegg: — Arr!
loki: — Stillið yður!
báðir, snúast að Loka: — Urr!
LOKI, hörfar: — Ég bið forláts. Hann hneigir sig.
bÁðir, við Loka: — Irrr! Arrr! Urrr!
loki, hörfar aftur á bak yfir sviðið: — Forlátið hamsleysi mitt.
JASPIS, hejur stigið upp á pallinn, hringir bjöllunni ákaft: — Þögn í salnum!
Þögn í salnum!
Jónmundur og Skeleggur átta sig. Þeir snúa til vinstri, rœskja sig, laga
bindin ... Loki sýpur á glasinu.
MYRKUR
196