Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Qupperneq 39
DÓMSMÁLARÁÐHERRANN SEFUR
SÍÐARA ATRIÐI
Jónmundur og Skeleggur eru enn að snyrta sig. Jaspis er á leiðinni út í
horn með bjölluna.
skeleggur, ræskir sig, við Loka: — Þér hafið ekki svarað spurningum okkar
enn.
Jaspis fer ajtur til sœtis síns.
LOKi: — Ég leyfi mér að koma með málamiðlun.
jónmundur, rœskir sig, við Loka: — Þér gátuð ekki leyst úr spurningunum.
loki : — Það er satt.
Hann gengur innar hœgra megin.
skeleggur, við Jónmund: — Er hann þá vitlaus?
JÓNMUNDUR: — Hann hefur minnsta kosti fallið á gáfnaprófinu.
LOKI, snýr sér við: — Lofið mér að koma með málamiðlun.
SKELEGGUR, ejtir þögn: — Ókey.
Jaspis vélritar nokkra stafi.
JÓNMUNDUR, gengur til hœgri: — Ókey.
Loki gengur að barnum.
SKELEGGUR, gengur til hœgri: — Ókey! Hann snýr sér við. Hver er þá mála-
miðlunin?
LOKI, hellir kokteil í glasið: — Herrar mínir! Mér var mikið niðri fyrir á
leiðinni hingað, eins og gefur að skilja: ég fékk ordru. Við aðaldyrnar
varð ég að snúa við.
skeleggur: — Af hverju?
LOKi: — Dyrabjallan virtist vera biluð.
JÓNMUNDUR, við Skelegg: — Ekki heyrðum við neina hringingu!
LOKi: — Ég gekk yfir fyrir húsið, í von um að þvottahúsglugginn væri geng-
ur. Hann var þá bundinn aftur.
skeleggur: — Með hverju?
loki: — Með niðurstöðu.
jónmundur, við Loka: — Þá hafa verið góð ráð dýr.
skeleggur, við Jónmund: — Ég hefði farið út í mjólkurbúðina á horninu.
Þar er sími.
JÓnmundur, við Skelegg: — Það var komið fram yfir lokun!
skeleggur: — Ja, hver fjárinn.
Loki sýpur á glasinu.
SKELEGGUR, við Jónmund: — Hvað hefðir þú gert í hans sporum?
197