Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Qupperneq 42
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
jónmundur: — Heyrðu! er hún ekki oftast í bíkíní?
Skeleggur reiðir upp hnefann.
jónmundur: — Nú, svona er æskan í dag.
JASPIS, stendur upp, hátt: — Ehemm.
Þeir líta til hans.
SKELEGGUR, gengur til hans: — í öllum bænum ...
jaspis, hátt: — Á ekki að skrá manninn áður en yfirheyrslan byrjar?
skelegguR: — Hvað heyri ég! Við Jónmund. Höfum við gleymt að skrá
manninn! Það hlaut að lá að. Við Jaspis. Engar vífilengjur!
jaspis: — Hvaða eyðublað?
skeleggur: — Það svarta.
Jaspis setur hvíta örk með svörtum ramma í ritvélina.
skeleggur, gengur til Jónmundar: — Ef okkur lízt færum við hann seinna
yfir á það hvíta.
jónmundur, horjir fram: — Nú reynum við stöngina.
JASPis, hátt: — Nafn.
skeleggur, við Jónmund: — Stöngina?
loki, kemur framar, hœgra megin: — Loki heiti ég.
Jaspis vélritar.
jónmundur, við Skelegg: — Já, nú reynum við bambusstöngina.
jaspis, við Loka: — Faðir?
jónmundur: — Og beitum flugu.
loki, við Jaspis: — Um það get ég ekkert fullyrt, kollega.
Jaspis vélritar.
skeleggur, við Jónmund: — Flugu?
jaspis, við Loka: — Fæðingardagur og ár?
J ÓNMUNDUR, bendir fingrinum upp: — Já, nú beitum við randaflugu.
loki, við Jaspis: — Ég segi þér satt, kollega, um það hef ég enga hugmynd.
skeleggur, við Jónmund: — Ég segi þér satt, Jónmundur, hún er trúlofuð.
jaspis, við Loka: — Fæðingardagur og ár?
SKELEGGUR, við Jónmund: — Er það þá ætlunin að hann bíti ekki á?
jaspis, við Loka: — Fæðingardagur og ár?
jónmundur, við Skelegg: — Hvað mundirðu gera í hans sporum, eigandi
ekki neitt, en vera boðið allt ?
skeleggur: — Ef hann er vitlaus er hann auðvitað hættulaus.
JASPIS, við Loka: — Fæðingardagur og ár?
JÓNMUNDUR: — Ef hann er vitlaus er auðvitað allt í keyi. En er hann vitlaus?
200