Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Page 62
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
frásagnir voru ekki einungis hafðar í
minnum, svo að hægt væri að
skemmta mönnum með þeim, heldur
höfðu þær fræðilegt gildi um forsögu
þjóðarinnar.
í öðru lagi má kynnast ýmsu í trú
og sið forfeðra vorra með því að
kanna goðakvæði og goðsögur. Um
ýmis goðakvæði hafa fræðimenn
karpað, hvort þau séu heldur norsk
eða íslenzk. I rauninni er það næsta
fátt, sem styður norskan uppruna
þeirra. Hins vegar má færa rök að
því, að sum þeirra kunni að vera eldri
en íslands byggð og því séu þau ekki
íslenzk í þrengsta skilningi. En sé
skoðun Barða Guðmundssonar hlítt,
að þjóðin sé eldri en byggð landsins,
verður málið allt skiljanlegra. Þá
hlýtur sú spurning að vakna, hvort
slík kvæði ber ekki að telja fremur
séreign íslenzka þjóðflokksins heldur
en sameign norska kynstofnsins. Með
því að slá því föstu í eitt skipti fyrir
öll, að íslenzka þjóðin sé einungis
hluti af Norðmönnum, hafa margir
fræðimenn falsað heimildargildi
goðakvæðanna. Nú er því svo háttað
um mörg þeirra, að engin rök verða
færð fyrir norsku heimkynni þeirra,
nema barnatrú manna um norskan
uppruna íslendinga verði talin til
raka. Það er í sjálfu sér engin ástæða
til að halda því fram, að elztu goða-
kvæði séu fremur ort í Noregi en í
Svíþjóð. Þess má til að mynda geta
um Hávamál, að í þeim koma fyrir
málseinkenni, sem benda fremur til
sænsku en norsku.
Fornaldarsögur og fornkvæði vor
eru í rauninni elztu fornminjar, sem
vér eigum. Þetta skildist hinum fróðu
mönnum á 12. og 13. öld, og því hik-
uðu þeir ekki við að beita þeim í því
skyni að sýna, hvaðan þjóðin var
runnin.
í ættartölu Ara fróða, landfræði-
ritinu og Ynglinga sögu eftir Snorra
Sturluson hillir undir þá hugmynd, að
forfeður vorir séu komnir til Svíþjóð-
ar sunnan úr álfu. Nú er það alkunna,
að Snorri studdist einkum við Yngl-
ingatal Þjóðólfs úr Hvini, en í því
kvæði kemur slík hugmynd ekki fram.
Kafli Snorra um þjóðflutninga að
sunnan til Svíþjóðar mun tvímæla-
laust vera sóttur til innlendra fræða.
Hér hafa því geymzt ævaforn minni
um þjóðflutninga sunnan úr álfu til
Norðurlanda. Hugmyndir þessar virð-
ast vera sérstæðar fyrir íslendinga,
enda munu þær lúta að forsögu ís-
lendinga fremur en annarra þjóð-
flokka í Norður-Evrópu.
220