Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Side 66

Tímarit Máls og menningar - 01.08.1961, Side 66
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR ir að langmestu Ieyti á rannsókn ó- prentaðra frumheimilda og þar hafa bréfasöfn Jóns Sigurðssonar og Bjarna amtmanns Thorsteinssonar orðið honum drýgst. Enginn maður hefur ausið af þessum fjársjóði ís- Ienzkra söguheimilda, sendibréfun- um, eins og Lúðvík Kristjánsson. Hann hefur þann hátt á að láta bréfin sjálf tala. Um það má deila, hvort sú aðferð sé rétt að fylla textann með orðréttum tilvitnunum frumheimild- anna. Persónulega hefur mér fundizt þetta varhugavert til þessa, en eftir lestur Vestlendinga get ég í rauninni fellt mig vel við þessa aðferð í fram- setningu, bæði vegna þess, að hér er um að ræða óteljandi fjölda smárann- sókna, þar sem höfundurinn verður að leiða vitni í máli sínu, og eins hins, að Lúðvík er sérstaklega leikinn í að hagræða skipulega tilvitnunum sín- um, hefur fullt vald á hinu yfirgrips- mikla efni, og ljóst er, að hann vitnar ekki í heimildir sér til arkafyllingar. í annan stað bregður fyrir vit manns ilmi og anda tímans við lestur þessara bréfatilvitnana, er mundi hverfa, ef sagt væri frá í óbeinni ræðu eða út- drætti. Það er ekki ofsagt, að Lúðvík Krist- jánsson hafi með þessu riti sínu opn- að mönnum nýja útsýn yfir einn merkasta kafla sögu vorrar. Auk þess sem hann hefur leiðrétt margt, sem áður var missagt, hefur hann dregið fram í dagsljósið staðreyndir, sem áð- ur voru að mestu huldar, og varpað bjartara ljósi á ævistarf þess manns, sem fyrirferðarmestur er í sögu ís- lands á 19. öld. Hann hefur ekki að- eins flutt Vestfirðingafjórðung inn í þjóðarsöguna. Hann hefur fært Jón Sigurðsson nær þessari sögu, og það eitt er mikið afrek. Ævisaga Jóns Guðmundssonar ejlir Einar Laxness. ísafoldarprentsmiðja og Sögufélag gáfu út. Það verður ekki ofsögum af þvi sagt, hve mannfrœði í þrengri merk- ingu hefur jafnan heillað íslendinga. Saga einstaklinga og ætta hefur verið viðfangsefni okkar síðan við lærðum fyrst að draga til stafs, og í þessu efni höfum við gert stórvirki fyrr á öldum — hver man ekki Hungurvöku? — og enn er það svo, að ævisöguritun skipar mest rúm í íslenzkri sagnfræði, þótt ekki risti hún alltaf djúpt né rísi hátt. En hvað sem því líður, þá liggja rætur þessarar tegundar sagnfræði við upphaf íslenzks ritmáls og enn í dag eru ævisögur íslenzkra manna einhver vinsælasta lesning meðal þess fólks, sem les ennþá bækur á íslandi. Ég hef lengi talið ævisöguritun eina erfiðustu grein sagnfræðinnar, ef rétt er á haldið. Því að sá sem ritar ævisögu er ekki aðeins að lýsa lífs- hlaupi einstaklingsins, heldur verður 224

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.