Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Side 35

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Side 35
MÝRIN HEIMA, ÞJÓÐARSKÚTAN OG TUNGLIÐ urnar mínar — nei, ég færi ekki í þær aftur, að minnsta kosti ekki meðan ég starfaði á elztu löggjafarsamkundu í heimi. Ég yrði heldur að temja mér nýtt göngulag í röska viku og hreyfa mig að öðru leyti eins mjúklega og ég gæti. Það leið sem sé að þingslitum, eldhúsdegi og afgreiðslu fjárlaga, dökk reyk- ský svifu yfir stólum í ráðherraherberginu, töfluneyzla jókst, sumir stungu upp í sig mörgum lakkrísspörðum í einu. Svo virtist sem leiðtogar þjóðarinnar væru óragari við það en stundum áður að biðja mig að reka erindi fyrir sig, en sjálfsagt hafa þeir jafnoft hlíft mér við snúningum, kunnað því betur að ábyrgur lærisveinn gæti fylgzt með baráttu þeirra undir lokin, þyrfti ekki að missa af neinu sem máli skifti. Þegar ég hafði lítið eða ekkert fyrir stafni, til dæms á kvöldfundum, gekk ég um sali í táknflíkinni minni, þaninn á taugum, stuttstígur eins og japönsk leikkona, flökti milli deilda og hlustaði á umræður, stóð ýmist úti í skoti og sneri saum- sprettu að veggnum eða tyllti mér varlega á stóla, sem voru naumast ætlaðir embættismönnum af mínu tagi. Ég bjóst við úrslitabaráttu gagnstæðra skoð- ana, hörðum sviftingum, strangri og tvísýnni kollhríð, sem hlyti að enda á undri og kraftaverki, hallalausum fjárlögum og kannski óvæntri frambúðar- lausn. En þingmenn voru í fyrsta lagi orðnir svo þrekaðir, og í annan stað búnir að leiða til lykta svo mörg deilumál og stofna svo rnargar nefndir til bráðabirgða, að þeir létu sér yfirleitt nægja að kýta um brj óstheilindi eða ítreka kenningar og röksemdir, sem bæði þeir og ég kunnu nokkurnveginn utanbókar. Að vísu þóttist ég vita, að þeir mundu færast í aukana andspænis hljóðnemanum á eldhúsdegi, en öngvu að síður var ég orðinn úrkula vonar um frambúðarlausn á þessu þingi og hættur að búast við frekari bráðabirgða- ráðstöfunum til að afstýra hörmungum, þegar norðlenzkur hagyrðingur tók allt í einu viðbragð og flutti breytingartillögu við fjárlagafrumvarpið. Á ell- eftu stundu kvaðst hann vilja spyrna við fótum, hefja á loft merki sparnaðar og endurreisnar, freista þess að lagfæra augljósa veilu í þjóðarbúskapnum: Styrkir til sumra skálda og listamanna, sem smeygt hafði verið inn á fimmt- ándu og jafnvel hina virðulegu átjándu grein, skyldu ýmist niður felldir eða lækkaðir um helming. Nú á dögum er það háttur gáfaðra stjórnmálamanna í öllum flokkum að fara annað slagið einstaklega fögrum og hjartnæmum orðum um ást sína á bókmenntum og listum. Fyrir röskum aldarfjórðungi lögðu þingmenn ekki í vana sinn að flíka slíkum tilfinningum í ræðu og riti, né klökkna ódrukknir af tómri menningarástúð, en á hinn bóginn var fjárveiting þeirra til styrktar 25
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.