Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Page 83

Tímarit Máls og menningar - 01.02.1962, Page 83
VÖRN SOVÉTRÍKJANNA 1941 hryggð. Tækifærið einstæða til að gera stórárás fjarlægist ögn með hverjum degin- um og ég veit ekki hvort það kemur nokk- urntíma aftur.“ Rauði herinn heldur alltaf áfram að gera gagnárásir þrátt fyrir ógnar- manntjón í Ukraínu og á Moskvuvígstöðv- unum. 9. nóvember verður 24. bryndreka- deildin þýzka að snúa sókn í vöm gegn skörpum og kröftugum áhlaupum Rússa. Þann 12. nóvember féll hitastigið niður í 15 gráður undir frostmarki. Þann 13. nóv- ember sýndi mælirinn — 22. Þann sama dag barst til stjórnarstöðva hers von Bocks í Orcha ný tilskipun frá yfirmanni herfor- ingjaráðsins, Halder, um „haustsóknina 1941“. Ákvörðunarstaður bryndrekasveita Guderians var Gorki, áður Nisjni-Novgo- rod, 500 kílómetrum framanvið þann stað, sem fremstu sveitir Þjóðverja höfðu þá á valdi sínu. Guderian rauk upp og sagði að þýzki herinn væri „ekki lengur í Frakk- landi né heldur væri maímánuður". I skýrslu, sem hann skrifaði þegar um kvöld- ið til Von Bocks, segir hann „að bryndreka- sveitirnar séu ekki í ástandi til að fram- kvæma slíka fyrirskipun“. Hitler hélt samt höstuglega til streitu fyrirskipunum sínum. Þann 16. nóvember hóf þýzki herinn nýja sókn á Moskvuvíglínunni. Hann beitti 51 herfylki, þar af 13 brynvörðum. Eftir tíu daga harða bardaga náði þýzki herinn fram til Moskva-Volga skurðarins með þann liðsafla sem sótti fram að norð- anverðu, en það voru 12 herfylki, þar af 7 stórfylki 4. vélahersins. Rússarnir hörfuðu, en fet fyrir fet. Sveitir Rokossovskís hers- höfðingja yfirgáfu stöðvar sínar í Istra en veittu stöðugt viðnám. Að sunnanverðu nálg- uðust bryndrekar Guderians smám saman Túla að austan og ógnuðu Kachira. Mundi Moskva falla? Nú var í rauninni svo komið að grunsemdir þær sem Guderian hafði lát- ið í Ijós í ágúst fóru að rætast með hverjum deginum sem leið. Þrátt fyrir stórfenglega sigra og sókn Þjóðverja langt inná land- svæði Rússlands var nú Barbarossaáætlun- in að mistakast og um það yrði ekki bætt. Hvergi hafði tekizt að brjótast gegnum sovézku víglínuna svo að máli skipti. Alls staðar var rauðiherinn óðara kominn til að byggja upp nýjar varnarlínur. í skipun sinni 2. október hafði Hitler skrifað: „Skil- yrðin fyrir hina voldugu lokaárás eru þegar fyrir hendi. Hún á að leiða til uppgjafar óvinarins fyrir veturinn. Nú hefst síðasta og mesta orrustan." Nú var sókn Þjóðverja ekkert sambærileg við áhlaup þeirra í júní og júlí við Minsk og Smolensk. Framvegis var þetta niðurlotaorrusta. Vélaherdeildum Þjóðverja gekk erfið- lega að athafna sig nema á aðalvegunum, og þegar nær dró Moskvu rákust þær á skurði, sem fólkið úr úthverfum Moskvu hafði grafið í veg fyrir þá. Skriðdreka- varnarlið Rússa var nú búið nýjum vopn- um, einkum 76 mm byssum, sem gerðu mik- inn usla í tækjum Þjóðverja. Lið þeirra lá undir árásum steypiflugvéla (Stormovik). Flugfloti Sovétríkjanna, sem yfirmenn Þjóðverja héldu sig hafa gert útaf við í eitt skipti fyrir öll á fyrstu vikum stríðsins kom nú aftur tvíefldur fram á sjónarsviðið með endurbættar flugvélar, orrustuflugvél- ar af Yak-gerð og Iljúsín-sprengjuflugvélar. Sókn Þjóðverja þokaðist nú aðeins um nokkra kílómetra á dag og rakst sífelldlega á nýjar og nýjar varnarlínur. Eftir því sem Halder segir höfðu Þjóðverjar misst 743 þús. manns á austurvígstöðvunum í nóvem- berlok, það var 23% af liði því, sem þeir beittu alls. 1. desember hafði verið sleginn hálfhring- ur um höfuðborg Sovétríkjanna. 4. skrið- drekasveitin undir stjóm Hoepners, sú 3. undir stjórn Hoths, 2. vélaherdeild Gude- rians gera nú lokatilraunina. Þegar á kvöld- ið leið tilkynnti von Bock Halder, að flokk- ar sínir væru farnir að hörfa fyrir óhaggan- 73
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.