Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Síða 30

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1963, Síða 30
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR í samræmi við þessar staðreyndir er áætlun stórauðvaldsins í hjarta Evrópu að mynda stór-ríki sem hafi bolmagn til að tryggja tilveru sína, þ. e. a. s. geti ekki aðeins hindrað að bandarískir auðhringar leggi Evrópu beinlínis undir sig, heldur treystist einnig til að helga sér sinn part af „annarsflokksríkjum“ heimsins. Hér er einkum um að ræða Afríku, því næst hættunni af amerískri fjár- festingu í Evrópu (sem er tiltölulega auðvelt, enn sem komið er, að af- stýra), er ekkert sem ógnar hinum evrópska kapítalisma jafn-mikið og yfirgangur Bandaríkjamanna í Af- ríku, tilraunir þeirra til að „stela“ Afriku frá evrópsku auðvaldi. Það er óhj ákvæmilegur þáttur í bjargráðaáætlun hins evrópska auð- valds að það hafi allar nytjar af Af- ríku, rétt eins og Bandaríkin af Suð- ur-Ameríku, og með svipuðum skil- málum. í Afríku fyrst og fremst á hið kapítalistíska frelsi að fá að njóta sín, þó að því verði haldið að ein- hverju leyti í skefjum heimafyrir. Og það væri óvarlegt að halda því fram að útilokað sé að hin nýfrjálsu ríki Afríku falli í þessa gildru. Byltingar- ölduna sem fór um Afríku um 1960 hefur nú lægt, efnahagurinn er mjög bágborinn, og hinar borgaralegu rík- aríska auðvaldið. En jafnvel þar hefur hin gífurlega bandaríska fjárfesting vakið tölu- verðan ugg meðal fjármálamanna á síðustu árum. isstjórnir sem þar hafa víðast komizt til valda, vilja ekki og geta ekki beitt öðrum ráðum en að leita annaðhvort til evrópskra eða amerískra ríkja um „aðstoð“. Þó ekki væri af öðru en þessari keppni um Afríku verður hemaðar- stefna og hervæðing einn aðalþáttur- inn í pólitík hins evrópska stór-ríkis. Hervæðing er reyndar öruggasta að- ferðin sem kapítalistískt þjóðfélag þekkir til að koma í veg fyrir krepp- ur, en á hinn bóginn dugir ekkert minna en atómstórveldi til að standa jafnfætis Bandaríkjunum; en atóm- stórveldi verður að minnsta kosti að hafa 150 milljónir íbúa; m. ö. o.: það þarf samanlagða framleiðslugetu Þýzkalands, Frakklands og Ítalíu til að standa undir atómhervæðingu. Þetta er raunar hinn hernaðarlegi kjarni Rómarsáttmálans. En hinn hernaðarlegi kjarni Róm- arsáttmálans er líka að svo komnu máli hinn áþreifanlegi sannleiks- kjami í þeirri kenningu að það sé þróun tækninnar sem krefst samein- ingar þjóðríkja í stór-ríki. Kenning- in lítur í stuttu máli þannig út að tæknin sé orðin svo flókin, kosti svo mikla samþjöppun, þarfnist svo geysidýrra vísindalegra rannsókna, að þjóðríkin hafi alls ekki bolmagn til að rísa undir þessu öllu. — Það er athyglisvert að formælendur kenning- arinnar minnast sjaldnast á atómher- væðinguna. — En það er óhætt að 20
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.