Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 111

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1966, Page 111
brögð, sem hann átti helzt í samkeppni við (gnósis, Manikeisma, Mitradýrkun o. s. frv.). Með slíkum samanburði hefðu bæði orðið ljós hin nánu tengsl kristindómsins við hinn almenna hugmyndaheim íbúa Rómaveldis (sem um leið hefði orðið les- endum skýrari) og einnig af hvaða lindum hann jós sérstaklega. Þetta er þýðingar- mikið, því að með kristindómnum mynd- ast m. a. harla afdrifarík tengsl við Gamla testamentið og hugmyndaheim Gyðinga, sem móta síðan mjög alla hugsun Evrópu- manna á miðöldum. Þeir sem einhverntíma hafa kynnt sér stjórnmálakenningar þær, sem miðöldungar settu fram, munu kannast við það, hve sögur úr Gamla testamentinu skipa þar háan sess, og hve mikilvæg „gyð- ingleg áhrif“ eru þar. Kristindómurinn mun einnig hafa rnyndað tengsl við ýmis austræn menningaráhrif og stuðlað að út- breiðslu þeirra í Evrópu, m. a. austrænnar helgitónlistar. Með því að bera saman hug- myndakerfi kristindóms og þeirra trúar- bragða, sem hann keppti við, hefði e. t. v. mátt leiða nokkur rök að því, hvaða þörfum alþýðu Rómaveldis kristin trú fullnægði svo mjög að það nægði henni að lokum til sigurs. Mörg athyglisverð vandamál eru tengd þessu. Höfundur nefnir einu sinni alþekkt dæmi úr Mattheusarguðspjalli (bls. 220) og skýrir þjóðsögukenndan uppruna orða, sem Kristi eru þar eignuð. Það hefði e. t. v. varpað nokkru ljósi á þau vandamál, sem ég nefndi áðan, að skýra á þennan hátt tilurð guðspjallanna í heild (og e. t. v. annarra frumkristinna rita) og í hvaða tilgangi hvert þeirra var ritað (slík frásögn hefði ekki sprengt um of rainma ritsins, þar sem hinar elztu kristnu bókmenntir hafa að sjáifsögðu mun meiri áhrif á 4. og 5. öld en þegar þær voru ritaðar). En öll slík rannsókn er miklum erfiðleikum bund- in, ekki sízt vegna þess, að misbrestur hef- Umsagnir um bœlcur ur stundum orðið á því, að sagnfræðingar hafi fjallað um þessi mál af sama hlutleysi og sálarró og þeir hafa rannsakað hrun Rómaveldis. Höf. gerir síðan þróun kirkjunnar sem stofnunar og viðskiptum hennar við ríkis- valdið ágæt skil. Honum verður að vísu á heldur leiðinleg mótsögn, þegar hann segir fyrst á bls. 39: „Þegar Díókletíanus hóf stórofsóknina á hendur hinum kristnu söfn- uðum, þá var hér ekki um að ræða ofsóknir gegn leynilegum og ólöglegum félagsskap, heldur svipting réttinda, er kristnir menn höfðu notið um langan aldur, þegar frá eru talin nokkur stutt ofsóknartímabil". Og síð- ar á bls. 211: „Þegar kirkjan reis upp úr katakombunum og hlaut frelsi til jafns við önnur trúmálafélög virðist hún hafa átt nokkrar eignir". Og: „A þeim öldum er kirkjan mátti ekki um frjálst höfuð strjúka í Rómaríki ...“ En þetta kemur naumast að sök, þar sem það kemur fram í frásögn- inni hvort réttara er. Höf. rekur mjög vel helztu atburði þessa flókna drama og tengir jafnan sögu kirkjunnar við rómverskt þjóð- líf, eins og vera ber. Einnig gerir hann góð skil þeim ádeilubókmenntum, sem spruttu upp af þessari baráttu og veita okkur mikla innsýn í hugarheim Rómverja. Ef til vill hefði þó mátt segja nokkuð ýtarlegar frá stjórnmálakenningum heilags Ágústínusar. Þær liöfðu að vísu ekki bein áhrif á stjórn- mál samtímans, en síðar jukust áhrif þeirra sífellt, og það er ekki of mikið sagt, að allir þeir, sem um stjórnmál rituðu á mið- öldum fram til loka 13. aldar, þegar áhrifa frá Aristótelesi fór að gæta að nýju, hafi byggt á kenningum heilags Ágústínusar að meira eða minna leyti. Og það var hann sem smíðaði þau vopn, er páfar notuðu síð- ar gegn keisurum. Þessir lærisveinar Ágúst- ínusar fóru þó engan veginn alltaf rétt með hugsun meistarans. f einum þekktasta kafla 429
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.