Tímarit Máls og menningar - 01.06.1972, Blaðsíða 99
Black Power
síðan íbúunum til að tala ensku. Ef þeir hefðu borið virðingu fyrir menningu
annarra þjóða hefðu þeir lært tungu hennar og tekið trú hennar og siðu.
Þetta stafaði af því að vestrið var voldugt.
Vald er orð sem enginn vill taka sér í munn. Aðeins valdið gat fengið
fólkið til að lúta höfði fyrir vestrinu. Það beygði sig ekki vegna þess að því
geðjaðist að Jesú Kristi eða hvíta manninum. Nei. Machiavelli sagði fyrir
löngu, að „fólk hlýddi húsbændum sínum aðeins af tveim ástæðum. Annað-
hvort elskaði það þá eða óttaðist.“ Ég spyr oft, hvort vestrið trúi því í raun
og veru að þriðji heimurinn elski það og það sé þess vegna sem hann hefur
hlýðnazt því. Nei, hann óttast það. Vestrið kcm með byssur og vald og her-
styrk tii Afríku, Asíu, Rómönsku Ameríku og Norður Ameríku og lagði undir
sig lönd. Hvítu mennirnir notuðu falleg orð meðan þeir voru að leggja undir
sig löndin. Þeir sögðu við indjánana: „Við ætlum að færa ykkur siðmenn-
ingu og við erum að temja vestrið. Ef þið hafnið siðmenningunni þá drepum
við ykkur.“ Síðan hófust þeir handa að útrýma íbúunum og stela landinu og
settu indjánana á afmörkuð svæði og þeir sögðust hafa siðmenntað landið.
Þetta nægði þeim ekki. Þeir fóru til Afríku og stálu íbúunum og fluttu til
Bandaríkj anna. Við vorum fluttir þangað til að meðtaka siðmenninguna „af
því að við vorum mannætur og átum hver annan“ og þeir ætluðu að gera
líf okkar „betra og fegurra“, sem var vitanlega þrælahaldið.
Áður en ég fer lengra ætla ég að draga fram einn skýran mun í sambandi
við menningarfriðhelgi. I löndum vestursins er lýðræði fyrir hvíta, suma
a. m. k. Þetta lýðræði er á kostnað litaðra þjóða. Meðan Bretar höfðu blöð
og þingræðisblaður um stjórnarskrána voru þeir að undiroka alla Afríku.
Sama var að segja um Frakkland, og ennþá undirokar DeGaulle Sómalíland;
og auðvitað á þetta einnig við um Bandaríkin á okkar tímum. Hvítir menn
eru mjög undarlegir, eins og þið vitið. DeGaulle fór frá Víetnam fyrir nokkr-
um árum og er nú orðinn afar víðsýnn. En hann er ennþá í Sómalílandi.
Vestrið hafði afl til að þröngva eigin menningu uppá aðra. Það sagði:
„Við erum betri, við erum siðmenntaðir“. Og af því að það var voldugt þá
fóru lituðu þjóðirnar að reyna að apa eftir Evrópu, taka hana til fyrirmynd-
ar og reyna að gera eins og hún, því enginn vildi vera ósiðmenntaður. For-
feður okkar höfðu gert sér Ijóst hvað siðmenning var, jafnvel löngu áður en
Evrópubúar skriðu úr hellum, og þeir hefðu átt að halda tryggð við eigin
lifnaðarhætti. Ef þeir hefðu gert það þá værum við e. t. v. ekki eins illa á
vegi stödd og við erum nú.
Allar þjóðir utan hins vestræna heims hafa verið rúnar eigin menningu.
89