Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.1972, Síða 116

Tímarit Máls og menningar - 01.06.1972, Síða 116
Tímarit Máls og menningar og segir að lokum hennar, goðsaga af dulúð og undarlegum rökum að baki hlutanna ytri ásýnd. 2. Frásagan er líka, eins og gefið var í skyn, sönn saga. Umgjörðin er sögu- legir atburðir, sögusvið landfræðileg staðreynd, og kirkjuna má virða fyrir sér úr vinnustofu Halldórs. Sagan er sögð frá sjónarhorni innansveitarmanns. Tímatal birtist af bréfum og öðrum skjalgögnum, en eins og vikið er að í upphafi bókar er brennidepillinn atburðirnir sem gerðust út af broti kirkj- unnar gömlu vorið 1888. Ramminn er raunveruleiki liðinnar og líðandi stundar, en í honum er saga sögð af fólki því sem andæfði niðurrifi kirkjunnar og átti hlut að endur- reisn hennar. Hér verða þess engin skil gerð, hvað sannfræði er og hvað skáldskapur höfundar innan ramma raunveruleikans, eða hvílík böndin eru sem tengja sögumanninn og höfundinn. Ég mun hér einvörðungu dveljast við nokkra dráttu í mannlýsingum, samsetningu og söguefnum, en læt nægja að vísa til athugasemda höfundar sjálfs um veruleik og skáldskap í bókinni: Skáldsagan er ritstýrð sagnfræði og eítirlíkt sagnfræði. Maður þykist vera að tala um veruleika, en það er sá veruleiki þar sem höfundurinn skipar hlutunum sjálfur í röð, „rétta“ röð, a. m. k., eftir sinni beztu samvizku. Það er tilraun til að fá lesandann til að trúa sagnfræði, sem maður hefur ritstýrt sjálfur eða búið til. En skáldsaga er samt að því leyti raunveruleg, að höfundurinn segir aðeins frá atburðum, hugmyndum, flækjum og árekstrum, sem hann hefur sjálfur lifað. (viðtal í Mbl. 11.10. 1970) Aðeins um tug manna er líf gefið í þessu skáldverki sem sjálfstæðum einstaklingum. Úr þessum hópi bera fjórir söguþráðinn uppi, - Ólafur hóndi á Hrísbrú, Finnbjörg kona hans, vinnukonan Guðrún Jónsdóttir og athafna- maðurinn Stefán Þorláksson. Hinir standa til hliðar, dregnir upp í einni eða tveimur línum. Hver aðalsöguhetja er fulltrúi þáttar í sögunni. Eins og fjórar manna- myndir á miðaldatréskurði lúka þær um íslenzkt svið sögunnar. Að tveimur inngangsköflum lesnum mætir lesarinn ábúendum á Hrísbrú, Ólafi, Finnbjörgu og sonum þeirra Boga og Andrési. Faðir og synir stíga fram á bókinni sem tákn hins forna, íhaldssama bændaþjóðfélags. I hátt eru þeir óbreytanlegir, og þeir heyra til kyrrstæðu samfélagi: Framþróunarkenníngin var ekki fædd og takmarkið var að standa í stað, í hæsta lagi líkjast öfum sínum. (bls. 16 áfr.) 106
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.