Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1975, Síða 60

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1975, Síða 60
Tímarit Máls og menningar þessarar „ljósmóður sögunnar“, eru þó flestir þeirra, sem urðu vitni að byltingunni eða rituðu um hana, sammála um, að valdbeitingin hafi ekki farið fram úr hófi, og bolsévíkar „hafi af einlægni stillt valdbeitingu í hóf“ gagnvart andstæðingum byltingarinnar. „Svo hóflega var að farið, að helzt minnti á göfuglyndi það, sem byltingarmenn fyrr á öldum sýndu smndum í sigurvímunni.“ Rauðu varðliðarnir slepptu til dæmis úr haldi liðsfor- ingjum þeim, sem barizt höfðu gegn þeim, og fóru ekki fram á annað en loforð um að liðsforingjarnir tækju ekki aftur upp vopn gegn bylting- unni — en það loforð sviku liðsforingjarnir um leið og kostur gafst. Nokkr- um ráðherrum úr Bráðabirgðastjórninni var einnig sleppt úr haldi. Kras- nov hershöfðingi hafði reynt að vinna Pétursborg af rauðliðum, en hann var látinn laus gegn loforði um að berjast ekki framar gegn sovétunum. Hann hélt óðar til liðs við herflokka hvítliða, sem þá voru að safnast sam- an í suðurhluta landsins. „Og fyrstu mánuðina, sem bolsévíkar voru við völd reyndu þeir ekki að blása að glóðum haturs og beiskju meðal þjóðar- innar, en reyndu þess í stað að setja tjáningu slíkra tilfinninga skorður.“ Fyrstu þrjá mánuðina, sem nýja stjórnin var við völd, var enginn dæmdur til dauða, og var það raunar eitt fyrsta verk sovétstjórnarinnar að afnema dauðarefsingu. Þessi hófsemi var næsta ólík öllum hryðjuverkunum sem andbyltingarmenn unnu og fyrstu ódæðisverkum hvítu ógnaraldarinnar, t. d. fjöldamorðunum, sem liðsforingjar í Moskvu frömdu á „rauðum“ föng- um, og blóðbaðinu í Finnlandi, þegar milli tíu og tuttugu þúsund „rauð- liðar“ voru drepnir.1 Roy Medvedev greinir frá því, að árið 1918, þegar borgarastyrjöldin stóð sem hæst, hafi aðgerðir Tséka einkennzt af hóf- semi borið saman við það, sem hvítliðar höfðust að, og verið undir póli- tískri yfirstjórn. Hann greinir frá því, að farið hafi verið fram á, að pynd- ingar yrðu leyfðar, úr því að andstæðingar byltingarinnar beittu þeim, en sú bón „ hafi vakið hneykslun meðal flokksmanna“.2 Refsiaðgerðir urðu tíðari, gerræði komst á á fleiri sviðum, dauðarefsing var lögleidd — en því verður ekki í móti mælt og má sanna með sögu- legum rökum, að þessi þróun var andsvar við aukinni ásókn hvítliðaherj- anna og íhlutun erlendra herdeilda, sem sendar voru þeim til hjálpar. En um andbyltingaröflin, erlenda íhlutun, tilraun allra arðránsstétta og afturhaldsafla til að kæfa hið unga sovétlýðveldi í fæðingu, þjóðfélagsafla, 1 Marcel Liebman, The Rt/ssian Revolution, London 1970. - Roy Medvedev, Let History jndge, London 1972. 170
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.