Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.10.1975, Page 77

Tímarit Máls og menningar - 01.10.1975, Page 77
Solsénítsín - pólitískt mal sem í þessu fólst — af orðum þeirra hefði vitaskuld mátt ráða, að gagn- rýni sem þessi mundi seint verða „hættuleg ríkinu“. Einnig hefur þetta mál varpað ljósi á ófyrirleitni og blygðunarleysi ákveðinna aðila í fjölmiðlum og stjórnmálalífi Vesturlanda, sem breytt hafa höfundinum (og með leyfi hans) í neyzluvarning í þágu sérlega frumstæðs andkommúnisma. Og enn hefur komið í ljós, hve miklum óþægindum slíkir atburðir valda viristri sinnuðum mönnum á Vesturlöndum — einkum þó þeim kommúnista- flokkum, sem tengsl hafa við Sovétríkin. An efa á Solsénítsín embættismönnum Rithöfundasambands Sovétríkj- anna, KGB og Kommúnistaflokksins að þakka mikinn hluta lesendahóps síns og frægð þá, sem honum hefur hlotnazt sem „samvizku mannkyns“. Þótt hæfni hans og hugrekki kunni að vera í meira lagi, hefði það eitt ekki dugað. Utlegðardómurinn yfir Solsénítsín hefur spillt málstað Sovét- ríkjanna mjög, einkum meðal menntamanna og framsækinna afla, sem voru Sovétríkjunum hlynnt, þótt ef til vill hafi þessi dómur virzt skásta pólitíska leiðin út úr ógöngunum. Sannleikurinn er sá, að leiðtogum Sovét- ríkjanna er nú meira í mun að afla sér efnahagslegra og viðskiptalegra bandamanna meðal gróinna og yfirlýstra fulltrúa heimskapítalismans en að taka upp alvarlegar viðræður (sem hljóta að verða gagnrýndar) við vin- veitta aðila eða hugsanlega bandamenn í alþjóðahreyfingu vinstri manna. Enginn efar lengur, að Moskva muni líta það hýrari augum að sjá Frakk- land í öruggum höndum gaullista en að sjá Frakkland feta á hála braut stjórnlítils sósíalisma. En hvað kemur leiðtogum Sovétríkjanna til að taka á sig slíka áhætm, þegar um gagnrýna menntamenn er að ræða, og vinna verk, sem eru svo skaðleg „ásjónu“ sósíalismans í Sovétríkjunum? Þ\'í er venjulega til svarað, að rithöfundar, sem gagnrýna þjóðskipu- lagið, og þá ekki sízt Solsénítsín, gætu fengið mikið áhrifavald ef sú stund kæmi, að leiðtogarnir teldu einhverrar enduskoðunar þörf á stefnu sinni. Verk Solsénítsíns hafa raunar haft umtalsverð áhrif meðal þeirra takmörk- uðu hópa, sem hafa átt þess kost að lesa rit hans undanfarin ár. „Héðan í frá verður ekki hægt að hugsa eða skrifa rétt eins og hann hefði ekki verið til,“ segja ungir sovézkir menntamenn, og er þó fjarri þeim að samþykkja fullyrðingarnar í Bréfi til leiðtoga Sovétríkjanna. Það er að sjálfsögðu þungt á metunum, hve ágætur rithöfundur hann er, en það skýrir þó ekki, hve stór lesendahópur hans er. Hér er einnig um ákveðið samspil að ræða milli rita Solsénítsíns og leyndustu hugsana lesenda hans. „Mállausir hafa fengið mál fyrir þinn tilverknað,“ sagði rithöfundurinn 187
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.