Tímarit Máls og menningar - 01.10.1975, Page 94
Tímarit Máls og menningar
Dem, hvori Specifikation hvor meget Pant og hvor meget Deposita til öjeblikkelig
Imödegaaelse af Beskyldningen.
Svar frá Gliickstadt kom mánudag, en á því var ekkert að græða.]
Eptir Framfundinn kvaddi varaformaður fjelagsins Þorleifur H. Bjarna-
son um 60 af beztu og knáusm fjelögum Frams upp á lopt í Goodtemplar-
húsinu til þess að ráðgast við þá um, hvernig skyldi undirbúa fundinn á
Lækjartorgi og síðan haga göngunni suður til Björns ráðherra næsta dag.
Voru þar kjörnir nokkrir snikkarar til þess að sjá um ræðupall handa
Knúti. Nokkrum mönnum var falið á hendur að bera plaköt um fundar-
haldið heim til bæjarmanna og festa þau upp. Loks voru kjörnir um 50
manns til þess að sjá um, að fundarhaldið og gangan færi skipulega fram,
og tók formaður mönnum þessum stranglega vara fyrir að áreita menn að
fyrra bragði og vara alla menn í förinni við því; ekki heldur skyldu þeir
neyta afls nema þeir ættu hendur sínar að verja. Að því búnu skildust
menn og hugsuðu sjer til hreyfings að morgni.
[Þá var og kosin 3 manna nefnd, þeir Þorsteinn ritstjóri Gíslason, Pjemr
Zóphóníasson bankamaður og Sveinn snikkari Jónsson til þess að tjá ráð-
herra, að bæjarbúar ætluðu að flytja honum áskorun daginn eptir. Skyldu
þeir spyrja hann hvort hann vildi vera heima og veita þeim áheyrn. Fóru
þeir að hitta hann daginn eptir milli 10 og 11 f. h. Hafði Þorsteinn orð
fyrir þeim og gaf hann og Pjemr mjer svofelda skýrslu um viðtal þeirra
við ráðherra: Vjer hitmm ráðherra á skrifstofu hans og tjáðum honum,
að vjer værum sendir af kjósendafundi, sem haldinn hefði verið hjer í
gærkveldi til þess að flytja honum þá ósk, að hann veitti áheyrn fjölda
kjósenda og bæjarmanna, sem hefði ráðið að koma til viðtals við hann
úr því kl. yrði 3 í dag. Hann gekk um gólf og spurði hvert erindið væri,
en vjer sögðum, að okkur hafi ekki verið falið að flytja honum neitt
ákveðið erindi, og spurðum hann, hvort hann yrði viðstaddur. „Það er
undir því komið, hvað gera á,“ svaraði hann. „Það á að færa yður áskor-
un,“ svaraði Þorsteinn. „Hvers efnis,“ spurði ráðherra. „Oss er ekki falið
að birta það, heldur aðeins að tilkynna komuna. Allt muni fara fram með
friði og spekt.“ Gekk hann því næst dálítið um gólf og mælti: „Já, er
það þá ekki meira?“ Nefndin kvað nei við því, kvaddi og fór.]
Mótmœlafundur á Lœkjartorgi
Að morgni þess 28. var lopt mjög þungbúið, en að öðru leyti gott veður.
204