Tímarit Máls og menningar - 01.10.1975, Qupperneq 95
Ráðherradagar Björns Jónssonar
Fyrir hádegi var búið að festa auglýsingu um fundinn á fjölmörgum stöð-
um í bænum og dreifa seðlum um fundarhaldið víðsvegar um bæinn.
Undir fundarboðið sem hljóðaði svo:
Vjer undirritaðir skorum hér með á alla, konur sem karla, er mótmæla vilja
hinni óforsvaranlegu meðferð ráðherra á Landsbankanum og forstjórum hans, að
koma saman á Lækjartorgi í dag, sunnudaginn 28. nóvember kl. 3 síðdegis.
rimðu alls 17 karlar og konur bæði úr Sjálfstæðisflokknum og Heima-
stjórnarflokknum. Oll voru nöfn þessi vel fengin, það vjer frekast vitum,
og getsakir stjórnarmanna um hið gagnstæða hafa ekkert við að styðjast,
eins og tíminn mun leiða í Ijós, sbr. um það Isafold og Lögrjettu og
Reykjavík.
Laugardaginn og sunnudaginn fram að kl. 3 síðdegis sendu bæði Isafold
og Lögrjetta út marga fregnmiða um varasjóðinn, sem hjer skal ekki fjöl-
yrt um.
Sunnudaginn þ. 28. nóv. á þriðja tímanum tók múgur manns að þyrpast
saman á Lækjartorginu og nálægum götum. Er með öllu ókleift að segja
með vissu hve mannfjöldinn hefir verið mikill, en óhætt mun að fullyrða
að mannfjöldinn hafi skipt fleiri þúsundum. Eptir ágizkun blaðanna teljast
þar hafa verið saman komin milli 4000 og 7000 karla, kvenna og ungl-
inga. En ekkert vita menn með vissu um tölu hans.
KI. 3.15 stje verkfræðingur og bæjarfulltrúi Knud Zimsen upp í ræðu-
stól, sem reistur hafði verið upp á torginu, og flutti hátt og snjallt ræðu
þá, sem prentuð er í 56. tölublaði Reykjavíkur, X. árg., þriðjudaginn 30.
nóv. 1909. Var ræðan með örlitlum breytingum prentuð eptir handriti
hans. Hann lauk ræðu sinni með svofelldum orðum:
Reykvíkingar! Látum oss orða mótmæli vor á þessa leið:
Fundurinn mótmælir aðförum Björns Jónssonar ráðherra gagnvart Landsbank-
anum og landsbankastjórninni; telur atferli hans ófyrirleitna misbeiting á valdi
sínu inn á við, óþolandi lítilsvirðing á sæmd og hagsmunum Islands út á við og
talandi vott um það, að honum sje ekki trúandi fyrir því embætti, sem hann hefir
á hendi. — Þess vegna krefst fundurinn þess, að hann leggi þegar niður ráð-
herraembættið.
Vjer höfum nú komið orðum að mótmælum vorum og látum oss þá samstundis
fara suður til ráðherra og flytja honum þau. Eg sting upp á því, að vjer biðjum
alþingismann Jón Jónsson frá Múla að hafa orð fyrir oss við ráðherra.
Var það samþykkt með lófataki. Að því búnu stje ræðumaður niður úr
205