Tímarit Máls og menningar - 01.10.1975, Síða 99
Ráðberradagar Björns Jónssonar
veita samsætinu forstöðu, Þorleifur H. Bjarnason, Jón Þorláksson verk-
fræðingur og Sveinn Sigfússon kaupmaður. Síðan talaðist þeim svo til að
taka þá Asgeir kaupm. Sigurðsson og kaupmann Jes Zimsen til aðstoðar
sjer í nefndina.
I Lögrjettu þ. 4. des. birtist góð grein um varasjóðsdeiluna undir ávarp-
inu „Lesið og skiljið". Grein þá hafði bankastjóri Schou samið, en H. Haf-
stein snaraði henni á íslenzku. Það hafði mælzt mjög illa fyrir, að ráð-
herra skipaði tvo menn úr rannsóknarnefndinni, þá Karl Einarsson sýslu-
mann og Magnús Sigurðsson, sem hinir fráviknu bankastjórar ljem verst
yfir í nefndinni, gæslustjóra. En þann 30. nóv. eða 1. des. sögðu þeir þeim
starfa af sjer. Við ráðherra báru þeir fyrir annríki sínu, við kunningja
sína, að þeir missm tiltrú manna. En smiðshöggið á þessa fyrirætlun þeirra
mun Magnús Stephensen, tengdafaðir Magnúsar, hafa lagt, er hann að
sögn átti að hafa sagt við hann: „Skríddu af flakinu maður, áður en það
sekkur.“ Aðrir hafa orð hans öðru vísi.
9. des. gekkst miðstjórnin fyrir því, að hinum fráviknu bankastjórum
var haldin veizla í Bárubúð kl. 8.15. Alls voru þeir sem tóku þátt í veizl-
unni 154, að meðtöldum 3 heiðursgestum. Miðstjórnin kaus Þorleif H.
Bjarnason, Jón Þorláksson verkfræðing og Svein kaupmann Sigfússon til
þess að standa fyrir veizlunni. Þorleifur hafði allan veg og vanda af því.
Hann ljet þá kaupmenn Jes Zimsen og Asgeir Sigurðsson vera innbjóð-
endur líka, til þess að ýta undir verzlunarstjettina að taka þátt í veizlunni.
Hafði eptir fyrirmælum Þorleifs Zimsen Tryggva til borðs, Asgeir Kristján
Jónsson og Jón Þorláksson síra Eirík. Þorleifur bauð menn velkomna.
Ræðurnar fyrir boðsgesmnum hjeldu þeir L. H. Bjarnason fyrir Tryggva,
en H. Hafstein fyrir gæslustjómnum. Hafði Þorleifur fengið þá til þess
og lögðu innbjóðendur aðrir samþykki sitt á það. Báðum sagðist þeim vel,
en Hannesi þó betur, enda naut hann betra hljóðs, af því að ræða hans
var styttri og menn orðnir nokkurn veginn saddir, er hann hjelt ræðuna.1
Kristján Jónsson þakkaði boðið fyrir hönd gæslustjóranna og Tryggvi fyrir
sína hönd. Voru ræður þeirra Hannesar og Lárusar síðar prentaðar nokkurn
veginn orðrjettar í Reykjavík 11. des. 1909. Þó var á nokkrum stöðum í
ræðu Lárusar sett ráðherrablaðið f. ráðherra og nokkrar aðrar óverulegar
breytingar á gerðar;2 um ræðu Hannesar er mjer ókunnugt, en jeg ætla
að á henni hafi ekki verið gerðar neinar breytingar sem teljandi sje. Ræða
1 ? ? (LHB).
2 Rangt. LHB.
14 TMM
209