Tímarit Máls og menningar - 01.10.1975, Qupperneq 106
Tímarit Máls og menningar
þegar lögreglustjóri og lögregluþjónar skoruðu á hann að fara sína leið.
Mun lögreglustjóri hafa verið kvaddur þangað af ráðherra eða að undir-
lagi hans. Hannes Þorsteinsson, sem ráðh. skipaði gæslustjóra ásamt með
Jóni Hermannssyni 1. des. f. á., hafði ekki komið í bankann og var þar
ekki um daginn. Gátu sumir til þess að hann hefði ekki þorað að mæta,
en aðrir sögðu, að hann sem þingmaður og forseti neðri deildar hefði kyn-
okað sjer að fótumtroða og ónýta lögmæta kosningu þingsins.
Sama dag um kl. IV2 e. h. kom miðstjórn Heimastjórnarflokksins ásamt
Þorleifi H. Bjarnason og Þorsteini Gíslasyni saman á fund hjá Jóni frá
Múla. Rjeðu menn þar ráðum sínum nokkra hríð; var samþykkt að senda
stærri kaupstöðunum skýrslu um hvað gerst hefði og senda út fregnmiða
um bæinn. Var þar saminn fregnmiði, sem Lögrjetta og Reykjavík sendu
út. En til þess að hafa sem sannastar sögur af öllu sem gerst hefði, fór
Þorl. H. Bjarnason til Kristjáns yfirdómara og fjekk hjá honum framan-
greinda skýrslu og brjef. Brjefið til Eiríks sá hann síðar um daginn og var
það að miklu leyti samhljóða við brjefið til Kristjáns, en nokkru styttra.
Það byrjaði svo: „Að gefnu tilefni þykir rjett að tjá yður, háæruverðugi
herra, til leiðbeiningar, að stjórnarráðið“ o. s. frv. sem brjef Kristjáns.
Um kvöldið skrifaði Kristján Jónsson Jóni Magnússyni bæjarfógeta og
bað hann sem fógeta konungs að rjetta hlut sinn og setja sig inn. Jón
Magnússon hjet honum að kveða upp úrskurð sinn næsta dag milli 5 og
6; vildi ekki kveða upp úrskurðinn kl. 12, eins og Kristján hafði mælst
til. Kristján tvískrifaði brjef sitt til Jóns áður en Jóni þótti það að öllu
leyti formlegt og kom frá honum kl. 8 um kvöldið, er eg hitti hann í
húsdyrum sínum, og sagði hann mjer þá frá samtali þeirra. Hann gat þess
og, að hann gæti ekki kannast við að hafa látið sjer um munn fara orðin
í fregnmiða Lögrjettu: „Bankastjórarnir sögðu ráðherra bera ábyrgðina,"
og hjet eg honum að fá Þorstein til þess að fella burtu þessa viðbót Hann-
esar Hafsteins og Þorsteins, er fregnmiðinn væri birtur í Lögrjettu og hét
Þorsteinn mjer því.
Fógetagjörðin fór fram í Landsbankanum þ. 4. janúar frá kl. 2-6.20
e. h. Af hálfu landsstjórnarinnar var þar mættur Ari Jónsson sem aðal-
umboðsmaður hennar ásamt Sveini Björnssyni og sem viðstöddum fregn-
berum eða sendisveinum stjórnarráðsins Guðmundi trjesmið Jakobssyni og
Þorsteini kand. Þorsteinssyni. Ennfremur var gjörðarbeiðandi sjálfur Kr.
Jónsson staddur þar og bankastjórarnir Björn Kristjánsson og Björn Sig-
urðsson og settur gæslustjóri Jón Hermannsson og tveir rjettarvottar.
216