Tímarit Máls og menningar - 01.10.1975, Page 122
Tímarit Máls og menningar
Þetta var engin tilviljun, þvert á móti.
Það segir sína sögu að kröfuganga silf-
urrefanna og blómahattanna var farin
á sama tíma og Fidel Castro var að ljúka
30 daga heimsókn til landsins en sú
heimsókn hafði margeflt baráttuvilja
stuðningsmanna stjórnarinnar.
Löghlýðnin varð Allende að jalli
Allende forseti skildi þá og lét svo
ummælt að alþýðan sæti á stjórnarstóli
en hún hefði ekki völdin í landinu. I
þessari setningu var fólginn meiri bitur-
leiki og gleggri forspá en margur hugði
þá því í brjósti Allende lifði sú lög-
hlýðni sem varð honum að falli: hann
barðist fyrir því til dauða að farið yrði
að lögum en hefði getað gengið hnar-
reistur út úr Monedahöll ef þingið
hefði beitt stjórnarskrárákvæðum til að
fella hann.
Italski blaðamaðurinn og stjórnmála-
maðurinn Rossana Rossanda sem heim-
sótti hann snemma árs 1973 lýsti hon-
um þannig að hann væri gamall tauga-
strekkmr maður fullur með dapurlegar
véfréttir þegar hann ræddi við hana úr
gula sófanum þar sem lík hans lá sjö
mánuðum síðar sundurskotið og and-
litið afskræmt eftir högg með riffil-
skefti. Þetta var rétt fyrir kosningarnar
í mars þar sem örlög hans voru ráðin.
Hann hefði gert sig ánægðan með að
Alþýðufylkingin hlyti 36% atkvæða.
En þrátt fyrir óðaverðbólgu, stranga
vöruskömmtun og pottakonsert kvenn-
anna kám úr yfirstéttarhverfunum hlaut
hann 44%.
Þessi úrslit sýndu kristdemókrömm
fram á að sú félagslega jafnréttisþróun
sem Alþýðufylkingin hafði hrundið af
stað varð ekki stöðvuð með löglegum
hætti — en þá skorti framsýni til að
sjá fyrir afleiðingar þeirra aðgerða sem
þeir nú gripu til. Bandaríkjunum var
þetta mun meiri aðvörun og stefndi í
voða þýðingarmeiri hlumm en einum
saman hagsmunum auðhringanna sem
orðið höfðu fyrir barðinu á þjóðnýting-
unum. Þetta var alþýðu heimsins lýs-
andi fordæmi um friðsamlega þróun og
félagslega umbyltingu og slíkt varð ekki
þolað. Ollum innlendum sem erlendum
öflum var nú beint í sama farveg til að
mynda heilsteypta gagnbyltingarfylk-
ingu.
CIA fjármagnaði nábjargirnar
Verkfall vörubílaeigendanna réð úr-
slimm. í svo löngu landi sem Chíle
hlýmr efnahagslífið að reiða sig mikið
á greiðar samgöngur. Ef þær leggjast
niður er það dautt og óvirkt. Það reynd-
ist andstöðuöflunum hægðarleikur að
koma því í kring, því stétt vörubílaeig-
enda fann öðrum meir fyrir skortinum
á varahlutum. Að auki fannst henni
hagsmunum sínum ógnað af þeirri til-
raun sem stjórnin gerði syðst í landinu,
að koma þar á góðum samgöngum með
stofnun rikisrekinnar vörubílastöðvar.
Verkfallið stóð þar til yfir lauk og var
aldrei brotið því það var fjármagnað
erlendis. „CIA kaffærði landið í doll-
urum til styrktar verkfalli eigendanna
og fyrir þeirra tilverknað dafnaði blóm-
legur svartamarkaður." Þetta ritaði
Pablo Neruda evrópskum vini sínum.
Viku fyrir valdaránið gekk olía, mjólk
og brauð til þurrðar.
A síðusm dögum Alþýðufylkingar-
innar, þegar efnahagslifinu hafði verið
kippt úr sambandi og landið rambaði á
barmi borgarastyrjaldar, snerist barátta
stjórnar og stjórnarandstöðu um hvorir
gæm sveigt herinn til fylgis við sig.
Síðustu viðburðir í þeirri baráttu voru
í senn táknrænir og hrollvekjandi: 48
232