Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Page 42
Dagný Kristjánsdóttir
Myndir
I
Eg var bara unglingur þegar ég las smásagnasafn Astu Sigurðardóttur í
fyrsta sinn. Sögurnar höfðu mjög sterk áhrif á mig og ég var ekki í vafa um
hver væri mesti rithöfundur á Islandi um þær mundir. Það var Asta. Hún
var langbest.
Ég held að ég hafi þá þegar byrjað að safna upplýsingum um þetta
átrúnaðargoð mitt, spurst fyrir um hana og reynt að búa mér til mynd af
henni. En hafi ég búið mér til mynd af Astu hefur hún áreiðanlega verið
líkari mér — eða öllu heldur því sem ég vildi vera — en henni.
Síðan hafa hugmyndir mínar um Astu Sigurðardóttur stöðugt verið að
breytast og ég er löngu búin að sjá að mynd annarra af henni er allt öðru vísi
en mín. Mér er næst að halda að engum tveimur mönnum beri saman um
það hvernig hún var. Það er svosem ekkert óeðlilegt; túlkunarfræðileg
vandamál koma alltaf upp þegar menn reyna að koma sér saman um raun-
verulega merkingu goðsagnar. Og ekki verða túlkunarfræðivandamálin
minni þegar tekur til smásagna Astu Sigurðardóttur — og bókmennta yfir-
leitt.
Hér á eftir ætla ég að greina eina af smásögum Astu, Dýrasögu, úr
smásagnasafninu Sunnudagskvóld til mánudagsmorguns. Þessi saga er ekki
valin af handahófi; hún er skrifuð árið 19611 og er þar með í hópi yngri
sagna Astu. Sagan er sérkennileg en þegar betur er að gáð má sjá að hún
tengist mörgum af eldri sögunum, tekur þær inn í sig, rúmar þær í sér.
Dýrasaga er þrungin af innri spennu, full af táknum og tvíræðni og þess
vegna nota ég hugtök og heiti úr sálgreiningu til að hjálpa mér við
textagreininguna. Það væri ofrausn að segja að ég beitti aðferðum sál-
greiningarinnar; aðferð sálgreiningarinnar er sú að sjúklingurinn talar, lætur
hugann reika og segir frá því sem vill tengjast saman. Sálgreinandinn hlustar
á frjáls hugrenningatengslin og reynir að finna í þeim mynstur, lykilorð,
sem geta hjálpað sjúklingnum í sjálfsgreiningu hans og leit að því sem veldur
honum kvöl og angri.
Ég er ekki sálgreinandi og Asta er ekki sjúklingur. Ein smásaga, jafnvel
168