Tímarit Máls og menningar - 01.05.1986, Side 120
Tímarit Máls og menningar
ræði fólks til náms. En allt þetta athæfi er umtal, alveg eins og verðlauna-
veitingin, og það er ranglátt að því leyti og því leyti einu sem það er ósatt
umtal. Og enn segi ég: hvatirnar breyta hér engu. Til dæmis virðist þorri
frjálshyggjumanna vera ósköp venjulegir einfeldningar sem er ekki illa við
nokkra sál.
Síðari andmæli Eyjólfs eru öllu snúnari viðfangs. Þar ræðst hann gegn
þeirri skoðun minni að eftir sannmæliskenningunni sé það „frumkrafa alls
réttlætis, sjálfur tilverugrundvöllur þess í næstum bókstaflegum skilningi,
að verðleikar mannlegra einstaklinga fái að koma fram“.7 Hér eru and-
mælin:
[Sannleikurinn gegnir hér] öðru hlutverki en áður í kenningunni, og jafnvel
[er] um að ræða sannleika í allt öðrum skilningi en áður. Lítum enn betur á
hvað Þorsteinn segir: „Og barn nýtur þá og því aðeins sannmælis að sannleik-
urinn um það — allur sannleikurinn ef nokkur von væri um hann — fái að
koma fram . . . Sannleikurinn er það sem í því býr.“ Eg get ekki skilið þetta
öðruvísi en svo að það sem hér er kallað sannleikur sé nánast það sama og
verðleikar, hinir góðu eiginleikar hvers og eins, hvort heldur þeir sem þegar
eru virkir eða hinir sem í okkur blunda og gætu komið í ljós síðar. Það er
verið að segja að barn njóti þá og því aðeins sannmælis að verðleikar þess fái
að koma fram . . . Þó svo að Þorsteinn komist hér prýðilega að orði, virðist
mér tal hans um sannleika í þessu sambandi villa lesandanum sýn og hafa villt
honum sjálfum sýn. Það er eitt að segja að réttlætið sé sannsögli um verðleika
fólks, hvort heldur virka eða blundandi, annað að segja að réttlætið sé það að
verðleikar fólks (sannleikurinn um það í hinum nýja skilningi) fái að koma
fram. Eg get ekki séð að sannleikurinn um okkur í síðari skilningnum komi
neitt við þeim sannleika sem Eva braut gegn forðum. Sá löstur eða synd sem
brýtur gegn þessum sannleika er kannski ranglæti — ég held þó oftar græðgi
eða sinnuleysi — en ábyggilega ekki lygi: ef réttlætið er að sannleikurinn fái
að koma fram, þá er ranglætið að aftra því; ef „að sannleikurinn komi fram“
merkir hér það sem mér virðist það hljóti að merkja, þá er ranglætið fólgið í
því að koma í veg fyrir að verðleikar fólks fái að koma í ljós, koma í veg fyrir
að það fái að njóta sín. Vera má að hér sé komið nálægt kjarna réttlætis og
ranglætis. En þetta kemur venjulegum sannindum og ósannindum ekkert við,
og ekki heldur sannmælum eða svikmælum eins og Þorsteinn virðist áður
skilja þau orð og eðlilegast er að skilja þau.
Hér virðist mér tvennt vefjast fyrir Eyjólfi. Annað er hið sama og fyrr: hann
getur ekki séð að sá sem kemur í veg fyrir að fólk fái að njóta sín sé
brotlegur við sannleikann. Við þessu hef ég það eitt að segja sem ég hef
þegar sagt. Hitt er miklu dýpra og skemmtilegra og markverðara og lýtur að
því sem hann telur vera tvennan skilning sannleikans hjá mér. Hugmyndin
246