Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Qupperneq 98

Tímarit Máls og menningar - 01.12.1992, Qupperneq 98
mætti hæglega ganga úr skugga um þetta, en við höfum ekkert últrafjólu- blátt ljós við hendina, enda skiptir það ekki öllu máli: því hið furðulega er nefnilega hvernig þetta þunna lag af litarefnum og olíu hefur staðist (tímans tönn) í næstum fjögur hundruð ár án þess að láta á sjá, slík seigla er óskiljanleg, ef haft er í huga að flest glæsiverk seinni alda eru í dag að mestu máð, að ekki sé minnst á verk samtímamanna okkar sem eru frá öndverðu jafn endingarlítil og bílarnir okkar, ritverk okkar, kælikerfin, sokkabuxurnar og hugmyndafræðin. Myndin gamla er að vísu dökk, full af skuggum. Eigandinn gæti fengið þá flugu í höfuðið að láta hreinsa hana. Listaverkasalinn segir honum: Bjartar myndir eru verðmeiri; og efnafræðingurinn útskýrir: Fullkomlega varanlegir litir eru ekki til. Öll litarefni breytast með tím- anum. Það sem var dökkt fyrir verður enn dekkra; jarðarlitimir verða svartari, einnig getur gljákvoðan upplitast. Úr fjarlægð lítur allt öðmvísi út. Tíminn líkamnast í óhreinindum aldanna. En sé ég inntur álits, þá er ég ekki fylgjandi því að myndin verði hreinsuð. Það eru líka til litir sem blikna í aldanna rás, og aðrir sem taka brey tingum eftir hitastigi. Til eru enn aðrir, svo sem blýhvítt og heiðblátt, sem eru mjög stöðugir. Leysiefni sem tæki tillit til þessa mismunar fyrirfmnst ekki. Á hreinsuðum fleti skýrast stöðugu litarefnin og jafn- vægi litagildanna raskast. En það em fleiri ástæður en tæknilegar sem mæla á móti því að við notum rúðuhreinsinn. Aldrei mun þessi litla trétafla líta út sem ný væri. Sú ósk að koma henni í upphaflegt horf er sprottin af fávisku. Saga olíunnar, málmsins og viðarins er álíka óaftur- kallanleg og saga okkar sjálfra. Ekki aðeins málaði skógurinn er óyfir- stíganlegur farartálmi, heldur og hin næfurþunna slikja aldanna sem hvílir yfír honum. Aldrei nokkum tíma mun okkur auðnast að sjá þessi pensilför með augum málarans, með augum samtímamanna hans. Hvað veitefnafræðingurumsögu augnatillitsins! Aðeins gullgerðarmaður gæti komist á snoðir um þessa leyndu dóma, og ef til vill kæmist hann að þeirri niðurstöðu að það sé ekki undir efnabreytingum komið hvort myndin er tær eða óljós, heldur undir auga athugandans og reynslu hans. Hvað varðar málarann — þá er ævi hans myrkri hulin. Kirkjubækur, segið þér, kirkjubækur og skjöl verður að rannsaka. En það em þurrar staðreyndir. Ég geri mér í hugarlund að hann sé fæddur 1575 eða 1576, í Flandri, nánar tiltekið í Mecheln. Hvers vegna ekki? Mecheln er fom vefnaðarborg, Hans Bol og Lucas van Valckenbrock em þar fæddir. 96 TMM 1992:4
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.