Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014 Stjórnvöld í Washington taka árás hakkaranna á Sony mjög alvarlega og segja hana ógn við hagsmuni þjóðarinnar. Það sem einkum gerir mál af þessu tagi erfið er að þótt aug- ljóslega sé oft um að ræða árásir sem í reynd er stýrt af ríkisstjórnum er nær útilokað að sanna það. Þannig gátu Rússar herjað á tölvukerfi Eist- lendinga og Georgíumanna í deilum við þá fyrir nokkrum árum. Gagnrýni var svarað með því að um væri að ræða árásir sem vafalaust væru gerðar af hálfu stjórnarand- stæð- inga í Eist- landi og Georgíu. Útgáfufyrirtækið Sony hefurátt í vök að verjast umhríð, hlutabréfin hafa lækk- að og í nóvember reið enn eitt áfall- ið yfir. Tölvuþrjótar birtu á netinu mörg þúsund viðkvæm innanbúðar- gögn, tölvuskeyti og annað, sumt af því var afar neyðarlegt fyrir fyrir- tækið enda ekki ætlað fyrir almenn- ing. Verra var að í gögnunum voru einnig persónulegar upplýsingar óbreyttra starfsmanna og segjast sumir þeirra nú íhuga málsókn. Sony hafi ekki gætt þess að verja gagnabanka sína nógu vel. Ýmsir keppinautar og margir fjöl- miðlar virtust varla geta leynt þórð- argleði sinni yfir óförum Sony, þótt jafnframt væri þess auðvitað gætt að fordæma tölvuþrjótana. Eins og oft áður er erfitt að full- yrða nokkuð um það hverjir hafi staðið fyrir innbrotinu í tölvukerfi Sony, svo auðvelt er að sögn kunn- áttumanna að hylja sporin. Grun- urinn beindist samt strax að Norð- ur-Kóreumönnum vegna þess að fyrirtækið hugðist taka til almennra sýninga á jóladag Viðtalið, spennu- og gamanmynd um morðtilraun við Kim Jong-un, leiðtoga N-Kóreu. Bandarískir fjölmiðlar segja ónafn- greinda fulltrúa alríkislögreglunnar, FBI, fullyrða að vísbendingar séu um aðild N-Kóreumanna. En hinir síðarnefndu vísa því á bug þótt þeir hafi fagnað „afreki“ tölvuþrjótanna. Heimsbyggðin er nokkuð sam- mála um að Kim Jong-un og morð- ingjahyski hans eigi ekkert gott skilið. Annað mál er hve smekklegt það sé að gera mynd um morð- tilraun við hann undir yfirskini við- tals og frumsýna hana á jóladag. Og Gæslumenn friðarins, eins og hakk- arinn/hakkaragengið kallar sig (að- eins er vitað með vissu að gögn Sony voru birt með aðstoð tölvu á hótelherbergi í Taílandi, enginn kannast við neitt á staðnum) ákváðu að ganga lengra eftir að ráðamenn í Pjongjang höfðu kallað mynd Sony hryðjuverk. „Munið 11. september 2001,“ sögðu þrjótarnir í tölvuskeytum fyr- ir nokkrum dögum, yrði myndin sýnd myndi „allur heimurinn fyllast ótta“. Ekki fór á milli mála að hótað var manndrápum í kvikmynda- húsum sem tækju myndina til sýn- ingar. Flest þeirra hættu við að sýna myndina. Yfirvöld vestanhafs sögðust að vísu ekki hafa séð neinar vísbend- ingar um að staðið yrði við þessar hótanir en Sony tók ekki áhættuna. Reyndar kom fram í tölvuskeyt- um sem hakkararnir birtu að yfirmenn Sony álitu mynd- ina svo lélega að hún myndi ekki ná neinum vinsældum! Ekki er víst að Kim Jong-un og félagar hans í Pjongjang líti málið þeim augum. Myndin gerir óspart gys að Kim, sagt er að hann eigi í miklum samræðum við höfr- unga og leiðtoginn hafi þann und- ursamlega eiginleika að þurfa aldrei að fara á salernið. Bannað að hlæja að Kim Að sjálfsögðu er ekkert fjölmiðla- frelsi í N-Kóreu, allir fjölmiðlar tigna Kim sem guðlega veru. Suð- urkóresk samtök, FFNK, sem berj- ast fyrir frelsi Norður-Kóreumanna, hafa oft sent loftbelgi með dvd- spilurum, útvarpstækjum og kvik- myndum með gagnrýni á stjórnvöld yfir landamærin. Diskum með Við- talinu hefði að sögn leiðtoga FFNK verið komið í hendur almennings með þessum hætti, segir í Guardian. Og fátt er hættulegra fyrir einræð- isherra en að láta hlæja að sér. Sony, sem nú hefur hætt við að sýna myndina, hefur víða sætt for- dæmingu fyrir að láta undan kröf- um tölvuþrjótanna, tjáningarfrelsið hafi verið selt. En fyrirtækið getur vissulega bent á að það hafi verið í erfiðri stöðu. Hverjum hefði verið kennt um ef, þrátt fyrir allt, hryðju- verk hefði verið framið í einhverju kvikmyndahúsanna og saklaust fólk látið lífið? Hætt er við að Sony- menn hefðu fengið að vita að ábyrgðin væri að hluta til þeirra. Hakkararnir hafa svínbeygt stór- fyrirtækið með hótunum sínum. Og margir segja að friðkaupastefna Sony sé undanfari þess að enginn muni lengur þora að gera myndir sem ofbeldisseggir, t.d. IS í Sýr- landi og Írak, hóti að svara með hryðjuverkum. En myndin er ekki horfin og þegar hafa verið birt á netinu brot úr henni, vafalaust verð- ur henni lekið allri með tímanum. Þá geta milljónir manna fengið tækifærið til að hlæja að Kim, millj- ónir sem varla hefðu ómakað sig í bíó til að sjá ómerkilega mynd sem búið er að gera ódauðlega. Ódauðleg mynd - með aðstoð Kims TÖLVUÞRJÓTAR RÉÐUST INN Í KERFI SONY OG HÓTUÐU HRYÐJUVERKUM EF SÝND YRÐI KVIKMYND UM MORÐ- TILRAUN VIÐ KIM JONG-UN, LEIÐTOGA N-KÓREU. SONY ER GAGNRÝNT FYRIR AÐ LÁTA UNDAN. ÁRÁS ÚR LAUNSÁTRI Öryggisverðir við bíósal Ace-hótelsins í Los Angeles áður en forsýning hófst á gaman- og spennumyndinni Viðtali. Í henni er lýst samsæri leyniþjónustunnar, CIA, um að láta myrða Kim Jong-un, leiðtoga Norður-Kóreu. AFP * Við erum búin að leyfa Norður-Kóreu að skipa okkurfyrir um efni kvikmynda og það er bara brjálæði.George Clooney, kvikmyndaleikari. AlþjóðamálKRISTJÁN JÓNSSON kjon@mbl.is HEIMURINN ÍA rt varký fr því juverkamenn, sen lamista m síðustu helgi m Gumsuri, í norð- ha AK AMABA talíbana í árásum avígamenn síðustu daga mærin að Afganistan. Herinn hefuvið landa ert mjög sókn n talíbönum í héraðinu Waziristan eftsína geg ir að hópur myrti 141, aðallega börn og ungtalíbana ga, í sjálfsmorðsárás skömmu. Var morðárásin sökóla í borginni Peshawar fyrirá s efnd vegna hertra aziristan eru aðalbækistöðvaðgerða hersins síðan í júní. Í W pakistanskra talíbana og gsl við bæði talíbana oni-samtakanna sem hafa tenHaqqa DIÐMBÓPUSA AN hlé haldi íEnn er talið að vo hverju tilr-Úkraínu þótt þar komi öð ráðhallega í Donetsk. Nýr foáta bandsins, Pólverjinn DoróvE p langtímastefnu gagnvart Rússlanðað ESB verði a ðum. Vandinn væri stefna Rússrnægja að bregð kraínu. ESB þyrfti að tryggjaallri Evrópu, ek efn n við ferðalögum til Kum ESB sa ban ar lögðu skagann u Írak segjast baráttunni kisins, IS og íð þess ka ð í úlfakreppu yt óttafósíðan í kná brott í gær. IS ræðu esem beittu um 8.000 öðbandarískra herflugvé S.heBandaríkjamenn seg

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.