Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Síða 18
Ferðalög
og flakk
Ferðahugmyndir á Pinterest
*Sniðugt er að safna hugmyndum fyrir draumaferðalagið áPinterest. Samfélagsmiðillinn er mikið notaður fyrir ferða-lagamyndir og alls kyns fallegar landslagsmyndir og auðveltað safna saman myndum af draumaáfangastaðnum. Núna ímestu snjókomunni og myrkrinu er ekki úr vegi að safnamyndum af sólarströndum sem viðkomandi langar til aðheimsækja. Líka er hægt að búa til möppur með drauma-
skíðaferðalaginu og aðra með draumalandinu og komast
þannig ef til vill einu skrefi nær takmarkinu.
Þegar við konan mín kynntumst vorið 2008 ákváðum við að flytja saman til Sví-
þjóðar. Haustið 2012 fluttum við síðan til Lundar með tæplega tveggja ára dótt-
ur okkar. Hún fór beint í leikskóla, konan mín í kennaranám og ég byrjaði að leita
mér að vinnu. Á endanum fékk ég tímabundið starf við að skrifa rannsókn-
arskýrslu. Það gaf mér nægilega reynslu til að fá fastráðningu við starf sem sér-
stakur ráðgjafi hjá Tryggingastofnun Svíþjóðar með sérhæfingu í sjúkratrygg-
ingum. Fyrsta árið okkar hér aðlöguðumst við breyttu landslagi og komum okkur
fyrir í litlu rauðu húsi. Við höfum kynnst frábæru fólki og skapað okkur nýjar
skemmtilegar hefðir í hversdeginum. Sumrin eru lengri og hlýrri og veturnir
styttri en á Íslandi. Í staðinn fyrir að fara í sund og húsdýragarðinn förum við á
ströndina á sumrin og í skógarferð á veturna, staðráðnar í að njóta kosta þess
samfélags sem við búum í. Aldrei að vita hvert við flytjum næst!
Dagný Skúladóttir Dóttirin Lovísa nýtur sín í Svíþjóð. Skógarferðir heilla.
Í litlu rauðu húsi
Dagný, t.h., ásamt Sif konu sinni.
PÓSTKORT F
RÁ LUNDI
Þökk sé sérlega vel heppnaðri auglýsingaherferð, „Kur-
isumasu ni wa kentakkii!“ (Kentucky á jólunum!) frá 1974,
fá Japanir ekki nóg af KFC á jóladag. Þegar hópur út-
lendinga fann hvergi kalkún um jólin heldur ákvað að fá
sér kjúkling hjá Kentucky Fried Chicken sá fyrirtækið
sóknarfæri og kom fram með fyrsta jólatilboð sitt. Fleir-
um en nokkrum útlendingum fannst þetta góð hugmynd
því jólatilboðið hefur slegið í gegn. Margir panta föturnar
einhverjum mánuðum fyrirfram til að forðast raðirnar en
þegar mest lætur þarf fólk að bíða í allt að tvo tíma í
biðröð eftir jólakjúklingnum, segir í grein á Smit-
hsonianmag.com.
Ilmurinn af kjúklingnum er svo lokkandi
Einfaldleiki slagorðsins og tengingin við hið ameríska virð-
ast hafa gert kjúklinginn sérstaklega lokkandi. „Japanir
eru þekktir fyrir að taka erlendar vörur og hugmyndir
og breyta þeim í takt við smekk landsmanna
og jólin eru engin undantekning. Þau eru
hátíð markaðarins og eru ekki trúarleg og
er miklu fé eytt í skreytingar, mat og gjaf-
ir,“ segir The Financial Times og er KFC
stór þáttur í þessu.
Jólatilboðið hefur undið uppá sig og er nú
hægt að fá kjúkling með köku og kampavíni.
Kostar það samtals um 5.000 krónur.
„Ein ástæða þess að auglýsingaherferðin hefur
virkað svo lengi er að skilaboðin eru alltaf þau
sömu: Á jólunum borðar þú kjúkling,“ sagði Yasu-
yuki Katagi, framkvæmdastjóri hjá auglýsingastof-
unni Oglivy & Mather í Japan.
Jólasalan nær hámarki á aðfangadagskvöld og þá
taka allir saman höndum til að láta biðraðirnar ganga
hraðar, skrifstofufólkið kemur í afgreiðsluna og stjórn-
endur staðarins setja á sig svuntuna.
KFC heldur áfram að auglýsa í aðdraganda jóla og
sýna auglýsingarnar þekkt fólk úr dægurheiminum með
kjúklingalæri í hendi. Jólin væru hreinlega ekki þau sömu
án djúpsteikts kjúklings.
JÓLAHEFÐ Í JAPAN AÐ FÁ SÉR KENTUCKY FRIED CHICKEN
Eina fötu af jólakjúklingi, takk
ÍSLENDINGAR TENGJA SKYNDIBITAFÆÐI
SENNILEGAST EKKI VIÐ JÓLIN, NEMA ÞÁ Á
HLAUPUM Í JÓLAGJAFAINNKAUPUM. Í JAPAN
ER ÞAÐ HINS VEGAR HEFÐ AÐ BORÐA
KJÚKLING FRÁ KFC Á JÓLADAG.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is