Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Síða 22
Vísindamennirnir telja að þetta gæti verið mikilvægt og ódýrt próf fyrir fólk sem lítur út fyrir að vera alheilbrigt en
gæti haft undirliggjandi sjúkdóm sem hægt væri að bregðast við ef hann uppgötvaðist í tíma.
Getty Images/iStockphoto
J
apanskir vísindamenn hafa komst að því að hæfileikinn til að standa á
öðrum fæti tengist ákveðnum þáttum í heilsufari fólks. Yasuharu Tab-
aro og teymi hans hjá Kyoto-háskóla komust að því að ef fólk getur
ekki staðið á öðrum fæti í meira en tuttugu sekúndur tengist það auk-
inni áhættu á skemmdum á litlum æðum í heilanum og skertri vits-
munagetu, jafnvel í fólki sem lítur út fyrir að vera heilbrigt. „Það ætti að
veita fólki sem á erfitt með að halda jafnvægi á öðrum fæti aukna athygli
þar sem þetta getur verið vísbending um aukna áhættu á heilasjúkdómum
og elliglöpum,“ segir Tabaro.
Rannsóknin fór þannig fram að yfir 1.300 manns voru beðin um að
standa á öðrum fæti með opin augu. Því næst fór fólkið í MRI-skanna og
þannig komu tengslin við skemmdu æðarnar í ljós en þær geta aukið
hættu á litlum blóðtöppum og smáblæðingum í heilanum. Hættan var
meiri hjá eldra fólki en sambandið hélt sér þegar búið var að taka tillit til
aldurs og hás blóðþrýstings. Meðalaldur þátttakenda var 67 ár.
Fyrri rannsóknir hafa leitt í ljós tengsl á milli þess að geta ekki haldið
lengi jafnvægi á öðrum fæti og minni vitsmunalegrar getu. Þetta getur
verið komið til vegna verra blóðflæðis í heilanum. Auðvitað er ekki hægt
að nota þetta á alla hópa þar sem ýmiss konar fötlun getur haft áhrif á
jafnvægið og verið þessu alls ótengd. Vísindamennirnir telja samt að
þetta gæti verið mikilvægt og ódýrt próf fyrir fólk sem lítur út fyrir að
vera alheilbrigt en gæti haft undirliggjandi sjúkdóm sem hægt væri að
bregðast við ef hann uppgötvaðist í tíma. Þeim sem ætla að prófa þetta
heima er ráðlagt að standa nálægt einhverju til að styðja sig við ef með
þarf því það er ekki gaman að detta og slasa sig fyrir jólin.
ÓVENJU ÓDÝRT LÆKNISFRÆÐILEGT PRÓF
Lífið í
jafnvægi
JAPANSKIR VÍSINDAMENN HAFA KOMIST AÐ ÞVÍ AÐ HÆFI-
LEIKINN TIL AÐ STANDA Á ÖÐRUM FÆTI Í MEIRA EN
TUTTUGU SEKÚNDUR SEGIR TIL UM HEILSUFAR FÓLK.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Í fyrra tóku 17.000 manns þátt í átakinu og segja margir þeirra að mánaðarhlé
frá drykkju endurræsi kerfið og í kjölfarið hafi þeir drukkið minna.
Morgunblaðið/Heiddi
Síðasti föstudagurinn fyrir jól er
þekktur í Bretlandi sem „svarti
föstudagurinn“ eða „brjálaði föstu-
dagurinn“ vegna þess hversu mörg
vinnustaðapartí fara fram á þess-
um degi. Á þessum degi er selt
meira áfengi á börum og veit-
ingastöðum en á sjálfu gamlárs-
kvöldi, samkvæmt Public Health
England.
Lögregla og sjúkralið undirbýr
sig jafnan fyrir vandamál tengd
drykkju á þessum tíma árs.
Til að vega upp á móti þessu
eru Bretar hvattir til að taka sér
frí frá áfengisdrykkju í janúar með
átakinu „Þurr janúar“
(www.dryjanuary.org.uk).
Í fyrra tóku 17.000 manns þátt
í átakinu og segja margir þeirra
að mánaðarhlé frá drykkju end-
urræsi kerfið og í kjölfarið hafi
þeir drukkið ekki aðeins minna
heldur líka sjaldnar.
Aðrir kostir við átakið eru
sagðir vera betri heilsa í janúar
og minni útgjöld. Ekki veitir af
eftir jólagjafakaupin.
DESEMBERDRYKKJAN NÆR NÚ HÁMARKI
Þurr janúar
Heilsa og
hreyfing *Haldin verður vetrarsólstöðuhátíð 21. desember á Ak-ureyri líkt og fyrri ár. Hátíðin fer fram milli klukkan 20og 22 í Jógahofinu og gera þátttakendur saman kundal-ini-jóga auk þess að stunda hugleiðslu, kyrja möntrur ogslaka á við heillandi tóna gongsins. Þetta er fyrir byrj-endur og lengra komna. Nánari upplýsingar um þennanviðburð og fleiri sem fara fram sama dag í Jógasetrinu í
Borgartúni 20 í Reykjavík á vefsíðu Félags kundalini-
jógakennara á Íslandi kyta.is.
Vetrarsólstöðuhátíð á Akureyri
Þýskar hágæða pönnur frá AMT
Allt fyrir eldhúsið
Verð fr
á:
13.500
kr.
• AMT eru hágæða pönnur úr 9mm þykku áli.
• Allar pönnur mega fara inn í ofn við allt að 240° hita.
• 25 ára ábyrgð á verpingu.
• Ný byltingakennd viðloðunarfrí húð sem er sterkari en
Teflon og án eiturefna.
• Nothæf fyrir allar eldavélar.
• Má setja í uppþvottavél.
Íslenska og þýska
kokkalandsliðið nota
AMT pönnur.
Allir velkomnir
Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | progastro.is
Opið alla virka daga frá 09:00 – 17:00.
WORLD’S
BESTPAN
„
“
THE
* “The world‘s best pan”according to VKD, largest German Chefs Association
*