Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 26
Heimili og hönnun *PopUp verzlun mun halda jólahönnunarmarkað í Porti Hafn-arhússins, Listasafni Reykjavíkur, í annað skipti um helgina.Fjölmargir íslenskir hönnuðir taka þátt í honum. Meðal hönn-uða sem selja vörur sínar á markaðnum má nefna Hlín Reykdal,Eygló Eyjólfsdóttur, Cooldesign, Deathflower, IngaSol Design,Millu Snorrason, Skallagrím design, Terta Duo, Söndru SanoErlingsdóttur, Rimmbamm, Pastelpaper, Svöfu, Marý og fleiri. Jólahönnunarmarkaður PopUp verzlunar verður opinn laug- ardag 20. desember og sunnudag 21. desember kl. 11-17. EINSTAKT HEIMILI Á EGILSSTÖÐUM Hvert rými hefur sinn karakter STEINRÚN ÓTTA OG ÓÐINN GUNNAR HAFA KOMIÐ SÉR OG SÍNUM VEL FYRIR Í NÝUPPGERÐU HÚSI Á EGILSSTÖÐUM. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Heimilið sem er nýlega uppgert einkenn- ist að miklu leyti af persónuleika og hlýju. Steinrún Ótta segir mikilvægt að heimilið endurspegli íbúana, sögu þeirra og líf. Ljósmyndir/Steinrún Ótta Steinrún Ótta ásamt dætrum sínum Dögun, níu ára, og Sól, sex ára. austfirskri hönnun og myndlist. „Það er margt að gerast hér á því sviði og vandaðar og fallegar vörur í boði úr austfirskum hrá- efnum, mér finnst líka nauðsyn- legt að styðja við það góða fólk sem er að skapa og selja sínar vörur hér heima.“ Aðspurð hvað sé á óskalistanum inn á heimilið segir Steinrún allt og ekkert. „Ég skiptist á að vilja alls konar fallega hluti inn á heimilið yfir í það að vilja ekki neitt og vera ótrúlega ánægð og þakklát fyrir það sem ég á. Þá langar mig bara að búa hér í „sveitinni“ og rækta mitt eigið grænmeti og vera sjálfri mér nóg og eiga sem minnst. Aðra daga langar mig ógurlega í Y chair-stóla eftir Hans J. Wegner, það er svo falleg smíði, eða PH5- eða PH Artichoke- ljósin, Tom Dixon-ljós, montana- hillur, kamínu í borðstofuna og allt milli himins og jarðar.“ grunnurinn sé klassískur, léttur og ljós og segir að þá njóti minni hlutirnir sín miklu betur. „Litir verða að fara vel saman og mér finnst gaman að hvert rými hafi sinn karakter.“ Steinrún segist leita mikið í skandinavískan stíl, einfalt og stíl- hreint en jafnframt persónulegt og hlýlegt. „Oft grínast ég með það að einfaldast væri að vera mjög mínimalísk til að minnka dótið í kringum mig, en líklega verð ég það aldrei. Ég hef mjög gaman af fallegum hlutum og þá ekki síst gömlum hlutum með sögu í bland við annað nýrra, ég er frekar gömul sál. Endurvinnsla og endurnýting er svo skemmti- leg. Heimilið á ekki að vera sýn- ingarsalur heldur endurspegla íbúana, sögu þeirra og líf en of mikið dót tekur líka mikla orku svo best er að ná góðu jafnvægi þarna á milli.“ Hjónin segjast heillast mikið af Á heimilinu búa þau Óð- inn Gunnar Óðinsson mannfræðingur, Stein- rún Ótta Stefánsdóttir vöruhönnuður og dæturnar Dög- un, níu ára, og Sól, sex ára. „Fyrir einu og hálfu ári fluttum við austur eftir þrjú ár í Reykja- vík, keyptum okkur litla íbúð í parhúsi á æskuslóðum mínum sem við gerðum upp að hluta. Núna í haust bauðst okkur að kaupa hina íbúðina líka og stækka um helming, sem varð úr að við gerðum og hafist var handa um miðjan september og allt sett á hvolf. Veggir voru rifn- ir niður, ný eldhúsinnrétting val- in, nýtt gólfefni og allt málað í nýja helmingnum,“ segir Steinrún Ótta vöruhönnuður, sem er um þessar mundir að stofna eigin rekstur í kringum hönnun og ráð- gjöf. Steinrún segir að við innrétt- ingu heimilisins sé mikilvægast að Ólíkir borðstofustólar í ýmsum litum eru sérlega fallegir. Borðstofan er einstaklega björt og persónuleg. Hönnunarjól í Hafnarhúsi

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.