Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 30
Matur og drykkir *Í sumar var mikið líf og fjör í Fógetagarðinum áhorni Aðalstrætis og Kirkjustrætis í miðbæ Reykja-víkur. Þar var í nokkur skipti haldinn götumat-armarkaðurinn KRÁS þar sem veitingamenn úrýmsum áttum settu upp bása og seldu gestum mat.Núna um helgina verður haldin JólaKRÁS, laugardagog sunnudag kl. 14-19. Boðið verður upp á heita drykki, jólaglögg, kakó og irish coffee. Um að gera að skella sér þangað og komast í enn meira jólaskap. Götumatarmarkaðurinn KRÁS U ndirbúningur og aftur undirbúningur er það mikilvægasta við það að halda gott gaml- ársboð segir Anna Björk Eðvarðsdóttir. „Það er ofboðslega gott að klára allt sem hægt er að klára fyrirfram og hafa sem mest tilbúið og við hönd- ina svo að maður geti notið kvöldsins og gestanna sinna. Einnig er fínt að passa sig að vera ekki með of flókinn mat.“ Sjálf hefur hún haldið gamlársboð fyrir fjölskyldu sína í mörg ár. „Það sem kemur manni í stemningu fyr- ir gamlársdag er hins vegar fyrsti reiðtúrinn, „skeifna- túrinn“, sem hestamannafélagið okkar stendur fyrir og er ómissandi. Lagt er af stað upp úr hádegi og þá verð- ur allt að vera klárt, steikin komin í ofninn, borðið skreytt og kjóllinn hangandi á herðatrénu. Þá er allt tilbúið þegar klukkurnar hringja inn hátíðina.“ Anna Björk heldur úti matarbloggi og er með sjúk- legan áhuga á mat að eigin sögn. „Ætli það megi ekki segja að ég sé ansi illa haldin af mataráhuga,“ segir Anna Björk og hlær. „Ég er samt ekki stödd á neinni sérstakri matreiðslulínu. Flestallt sem viðkemur mat vekur áhuga minn, hvort sem það eru nýjustu straum- arnir í matargerð, hvernig við nýtum matinn sem við kaupum dags daglega, eða að halda í hefðirnar í gömlu íslensku matargerðinni, hún má ekki gleymast í öllum nýjungunum. Svo getur matargerð verið útrás fyrir sköpun og tjáningu.“ Eftir að dætur Önnu urðu eldri fann hún meiri tíma fyrir sjálfa sig og ákvað að stofna matarblogg. „Mér finnst ég ótrúlega lánsöm að hafa tíma til ráðstöfunar til að gera það sem mér finnst skemmtilegt, veitir mér mikla ánægju og ýtir mér stundum út fyrir þæginda- rammann, það er gaman.“ Hún segist fá hugmyndir út frá eigin matarvenjum, en hún borðar árstíðabundinn mat, eða það sem er best hverju sinni. Skraut segir hún geta verið hvað sem er. „Það getur verið eitthvað sem ég sé í kringum mig, í tímariti, stundum lag í útvarpinu en svo er það líka tilefnið. Stundum fæ ég mynd í hug- ann og reyni að framkalla hana í borðskrautinu eða í matnum. Ég þarf að fá útrás og gleði við það að grúska og undirbúa mig þegar ég held boð, það er helmingur ánægjunnar. En umfram allt er það stemningin og upp- lifun gestanna sem skiptir máli, hvort sem það er gaml- ársboð eða soðning á mánudegi,“ segir Anna Björk kát að lokum. Morgunblaðið/Kristinn GAMLÁRSBOÐ FYRIR FJÖLSKYLDUNA Í MÖRG ÁR Ávallt farið í reiðtúr á gamlársdag ANNA BJÖRK HELDUR ALLTAF ÁRAMÓTABOÐ FYRIR FJÖLSKYLDU SÍNA. HÚN SEGIR ÞAÐ HEFÐ AÐ FARA Í REIÐTÚR Á HÁDEGI Á GAMLÁRSDAG EN ALLT VERÐUR AÐ VERA TILBÚ- IÐ FYRIR ÞANN TÍMA. GÓÐUR UNDIRBÚNINGUR ER ÞAR LYKILATRIÐI. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is Borðið er glæsilega vel skreytt og einstaklega smart hjá Önnu Björk. 24 stk. 4 egg 4 msk. rjómi 4 msk. ferskur graslaukur, saxaður 1 msk. olía 40 g smjör u.þ.b. 6 sneiðar hvítt sam- lokubrauð 60 g sýrður rjómi 50 g laxahrogn 50 g svartur kavíar skraut: saxaður graslaukur og radísuspírur Aðferð: 1 egg, 1 msk. rjómi og 1 msk. af graslauk ásamt salti og pipar þeytt saman og steikt á ol- íuborinni pönnukökupönnu í þrjár mín. á annarri hliðinni, eða þang- að til eggjakakan er rétt stífnuð. Þá er henni rennt af pönnunni á bökunarpappír og rúllað þétt upp um leið og hún er orðin nógu köld til að handleika. Passa að of- steikja kökuna ekki, þá er erfitt að rúlla henni upp. Þetta er svo endurtekið með restina af eggj- unum. Hverri rúllu er svo pakkað í matarfilmu og kæld í minnst eina klst. (má gera daginn áður), áður en rúllurnar eru skornar í 24 jafn- stóra bita. Brauðið er ristað í brauðrist og smurt heitt svo smjörið bráðni inn í það. Svo eru skornir fjórir hringir út úr sneið- unum. Ofan á hvern hring er sett ½ tsk. af sýrðum rjóma, síðan er einum bita af eggjaköku þrýst létt upp á endann, ofan á og skreytt með hrognum, graslauk og spír- um. Rúlluð eggjakaka með graslauk og hrognum 24 stk. 24 lítil muffinform úr áli olíuspray 1⁄4 bolli gott brauðrasp 1⁄4 tsk. oregano, þurrkað 1⁄4 bolli ristaðar pekanhnetur 2 msk. parmesanostur, rifinn 2 msk. brætt smjör 250 g rjómaostur til mat- reiðslu (ekki light), mjúkur 90 g geitaostur (lurkur), mjúkur 1 stórt egg 2 msk. rjómi 1 msk. sriracha-chilisósa, sterk ½ bolli rauð chilisulta, brædd í potti Aðferð: Ofninn er hitaður í 180°C. Álformin eru sett í míní- bökunarformin og þunnu lagi af olíu spreyjað ofan í þau. Brauð- mylsnu, óreganói, kryddi, hnetum, osti og smjöri er blandað vel saman í skál og u.þ.b. 1 tsk. af mylsnunni þrýst þétt í botninn á formunum. Blandið rjóma- og geitaosti vel saman á meðalhraða í hrærivél þar til léttir og hafa blandast vel. Þá er eggi, rjóma og sriracha-sósu hrært út í. Hrær- unni er skipt á milli formanna þannig að þau séu full að 3⁄4. Bak- að í 10 mín., eða þar til kökurnar eru stífar. Kældar í formunum í 20 mín. Chilisultan er brædd í potti og 1 tsk. af henni sett ofan á hverja ostaköku. Kældar í 2-12 tíma. Má frysta. Bakaðar míní-geitaostskökur með chili 

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.