Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014
Græjur og tækni
Jólagjafir fyrir dýrin
Orbilo
c ljós
kr. 5.6
12.-
Jólahú
fur
frá kr
. 884.
-
Plastbúrfrá kr. 2.987.-
Jólabúningarfrá kr. 3.876.-
Katta
klórur
frá kr
. 2.99
5.-
Rúmfrá kr. 2.997.-
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Sími 511-2022 | www.dyrabaer.is – fyrir dýrin þín
Smád
ýrabú
r
frá kr
. 3.59
5.-
Nokkur klón niðurhalssíðunnar alræmdu Pirate Bay
skutu upp kollinum í vikunni og eins og gert hafði ver-
ið ráð fyrir mun reynast sænskum yfirvöldum erfitt að
halda starfsemi síðunnar niðri enda minnir hún á
grísku nöðruna Hýdru úr goðafræðinni, sem öðlaðist
tvö ný höfuð fyrir hvert eitt sem hún missti.
Klón Pirate Bay rísa upp
Þ
eir sem leggja það í vana
sinn að kaupa bækur eða
hluti í gegnum vefrisann
Amazon geta öðru hverju
ekki annað en fallið í stafi gagn-
vart skilvirkni og nákvæmni síð-
unnar. Oftar en ekki er þar jafn-
framt að finna besta verðið og
tilboð á nýjum bókum eru iðulega
allt að því glæpsamlega hagstæð.
Hins vegar kom upp sjaldgæf
tæknileg villa á síðunni í liðinni
viku sem varð til þess að þeir sem
voru inni á síðunni á því augna-
bliki gátu gert ótrúleg kaup. Þetta
ástand varði í um klukkustund og
afleiðingarnar eru hræðilegar fyrir
marga seljendur.
Verð á þúsundum hluta féll nið-
ur í 1 p., um tvær íslenskar krón-
ur, og viðskiptavinir sem voru vel
á verði létu ekki segja sér það
tvisvar og hófu magnkaup í um-
talsverðum mæli. Fyrir vikið biðu
mörg lítil fyrirtæki sem selja vörur
sínar á Amazon töluvert fjárhags-
legt tjón og þeim hefur jafnframt
verið tilkynnt að vefrisinn hyggist
ekki bæta þeim það tjón. Selj-
endum var tilkynnt í tölvupósti að
vildu þeir léta réttar síns yrðu þeir
að hafa samband við þann þriðja
aðila sem sér um hugbúnaðinn
sem brást.
Villan lýsti sér þannig að hug-
búnaður sem utanaðkomandi selj-
endur beita til þess að tryggja að
þeir bjóði upp á lægsta verðið á
markaði gekk allt í einu af göfl-
unum og snarlækkaði verð á ýmsu
niður í sama og ekkert. „Amazon
er í tómu rugli,“ tísti einn athugull
notandi. „Rúmdýna 1 p., heyrn-
artól 1 p., rafhlöður, föt, tölvu-
leikir, allt 1 p. Einhver brást illi-
lega.“
Martin Le Corre, sem selur leik-
föng og tölvuleiki frá vöruhúsi sínu
í gegnum Amazon, sagði í samtali
við The Guardian að villan í tölvu-
kerfinu hefði kostað hann um
100.000 pund eða í kringum 20
milljónir króna.
„Síminn hringdi og samkeppn-
isaðili okkar var hinum megin á
línunni og spurði hvort við átt-
uðum okkur á því að við værum að
selja hlutina okkar á eitt penní.
Eftir klukkustund var búið að
leggja inn 1.600 pantanir til okkar.
Fólk var kannski að kaupa 10, 50
eða 100 eintök af sama hlutnum.“
Þegar hann tók verslun sína af
vefsíðu Amazon hafði verið til-
kynnt að varningur fyrir um 6
milljónir hefði þegar verið sendur
af stað frá Amazon. Það þýðir að
ekki er hægt að hætta við pönt-
unina eða rifta samningnum.
Fyrirtækið sem sér um hugbún-
aðinn sem brást nefnist Repricer-
Express. Það hefur heldur ekki
boðist til að bæta seljendum tjónið
að einhverju leyti en sendi frá sér
tilkynningu þar sem fram kom að
forsvarsmenn þess væru miður sín
vegna þeirra óþæginda sem bilunin
olli viðskiptavinum fyrirtækisins.
Þeir fjölmörgu seljendur sem
lentu illa í þessu óhappi hafa lýst
yfir sameiginlegri óánægju sinni
gagnvart viðbrögðum vefrisans og
blöskrar sú staðreynd að eitt
stærsta fyrirtæki heims vilji ekk-
ert gera til þess að koma til móts
við þá.
Kjarakaup
gerð í frum-
skóginum
VILLA Í HUGBÚNAÐI SEM TRYGGIR SELJENDUM LÆGSTA
VERÐIÐ Á AMAZON GERÐI AÐ VERKUM AÐ VERÐ Á ÞÚS-
UNDUM VARA VAR LÆKKAÐ NIÐUR Í EITT PENNÍ. VEFR-
ISINN ÆTLAR EKKI AÐ BÆTA TJÓNIÐ SEM AF HLAUST.
Halldór Armand Ásgeirsson haa@mbl.is
Amazon er eitt af stærstu fyrirtækjum heims og stofnandi þess, Jeff Bezos, er einn af ríkustu mönnum í heimi. Fyr-
irtækið lýsti sig ábyrgðarlaust gagnvart seljendum enda væri hugbúnaðurinn sem brást á vegum þriðja aðila.
AFP
Vöruhús Amazon eru tröllaukin að stærð og starfsemi þeirra þykir ótrúlega
skilvirk og nákvæm. Lítil villa í hugbúnaði hafði mikil áhrif á kauphegðun fólks.
AFP
* „Amazon er ítómu rugli.Rúmdýna 1 p.,
heyrnartól 1 p., raf-
hlöður, föt, tölvu-
leikir, allt 1p. Ein-
hver brást illilega.“
Gætir þú hugsað
þér að fá ókunnug-
an mann til þess að
vekja þig á morgn-
ana? Nú er hægt
að nálgast þessa
tilfinningu í gegn-
um smáforrit sem
verður að teljast ein frumlegasta
vekjaraklukka sem litið hefur dags-
ins ljós. Um 1,5 milljónir notenda
notast nú við Wakie, hina „fé-
lagslegu vekjaraklukku“ eins og það
er kallað. Segjum sem svo að þú
stillir vekjaraklukkuna á sex að
morgni, þá virkar forritið þannig að
þú færð símhringingu á þeim tíma
frá öðrum notanda, vakandi að sjálf-
sögðu, sem vekur þig.
APPIÐ
Láttu
ókunnuga
vekja þig