Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 41

Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 41
21.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41 Úrsmíðameistari okkar missir aldrei einbeitinguna Vegna annálaðrar einbeitingar, nákvæmni og 45 ára reynslu, tryggir úrsmíðameistarinn gæði íslensku úranna. Gilbert Ó. Guðjónsson úrsmíðameistari og alþekktur fagmaður grandskoðar hvert einstakt úr áður en það yfirgefur verkstæði okkar. JS úrin eru íslensk hönnun og framleiðsla, sett saman á úrsmíðaverkstæði Gilberts, þar sem viðskiptavinir geta komið og hitt úrsmiðina sem setja saman úrin þeirra. É g nálgast hönnunina út frá teikningunum mínum og spinn sögur sem skapa heil- an heim af vörum. Í byrjun sköpunarferilsins vinn ég oft með músu sem fyrirmynd í vinnuferlinu. Músurnar eru allar þær sterku kon- ur sem ég hef í kringum mig en ég er svo lánsöm að vera umkringd skapandi, sterkum og áhugaverðum karakterum,“ segir Hildur Yeoman sem hannaði línuna Yuliu. Hildur segir kveikjuna að línunni hafa verið sterkar konur og persónur sem brjótast gegn þeim borgaralegu gildum sem samfélagið setur okkur og nefnir þá sérstaklega ömmu sína Juliu. „Amma Julia var húsmóðir sem bjó í New Jersey en stakk af frá fjölskyldunni sinni til að ferðast um Bandaríkin með mótorhjólagengi. Ég hitti hana ekki oft þegar ég var lítil enda bjó hún í Bandaríkjunum en þegar ég hitti hana þá var ég alltaf logandi hrædd við hana og fannst hún alltaf vera hálfgerð norn. Mér hefur seinna verið sagt að hún hafi verið rammgöldrótt týpa með ungverskt sígaunablóð í æðum.“ Línan samanstendur af fallegum og kvenlegum flíkum með áherslu á munstur sem unnin eru eftir ljós- myndum og teikningum eftir Hildi sjálfa. Í línunni takast á andstæður í efnavali. Það eru annars vegar prentuðu efnin sem eru úr mjúkum þægilegum efnum eins og silki, bómull eða viscose. „Hins vegar er ég að vinna með óhefðbundnari efni eins og nótagarn sem ég prjóna flík- ur úr sem ég vinn svo lengra með að bródera í þær. Skartið er heklað úr nótagarni og bróderað með nátt- úrusteinum sem hafa heilandi orku.“ Hildur frumsýnir nýja línu á hönnunarmars 2015, þar sem hún kynnir sér galdra frekar og mun vinna í samstarfi við íslenska seið- konu. „Mér hlotnaðist sá heiður á dög- unum að hljóta styrk frá Hönn- unarsjóði Auroru, styrkurinn er til frekari vöruþróunar sem mun koma sér vel við undirbúning þeirrar línu.“ Yulia er nú fáanleg í versluninni Kiosk á Laugavegi. Í samstarfi við íslenska seiðkonu FATAHÖNNUÐURINN HILDUR YEOMAN KYNNIR NÝJA LÍNU SEM BER NAFNIÐ YULIA OG ER INNBLÁSIN AF ÖMMU HENNAR, JULIU. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Áhersla er lögð á munstur í lín- unni sem unnin er eftir ljósmyndum og teikn- ingum eftir Hildi sjálfa. Hildur notast við óhefðbundnari efni eins og nótag- arn og nátt- úrusteina sem hafa heilandi orku.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.