Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Page 44
Sterk nærvera og gott sjálfstraust
Tolli er fæddur í dögun, rétt fyrir morgunsárið. Sólin var í
fyrsta húsi. Þar liggur eitt helsta einkenni þessa ágæta drengs.
Hvar sem hann kemur þá er hann sól, maður sem athyglin
beinist að. Nærveran er sterk, sjálfstraustið gott. Hann er lista-
maður, en hann er líka „businessmaður“. Hann er félagslyndur,
en um leið er hann trillukarl. Tolli er fagurkeri, en hann er líka
hrár. Listaverk á verkstæði, það er Tolli.
Tolli er Vog. Kjarni málsins þegar Vogin er annars vegar er þessi: Hún er
ljúf, jákvæð og vingjarnleg. Hún er félagsmálafrömuður og tengslamaður. Vogin
hefur sterka réttlætiskennd og skynjar vel hvort jöfnuður ríki í umhverfi sínu.
Hún er rökföst og skynsöm og líður best þegar hún notar bros og málefnalega
ákveðni til að fá sínu framgengt. Jafnframt því er ríkt í upplagi hennar að
berjast fyrir málefnum sem hún trúir á. Hún hefur næmt auga fyrir fegurð,
jafnvægi og formi. Þannig er Tolli. Listamaður sem tekur brosandi í höndina á
viðmælanda sínum. Augun glampa. Blessaður! Röddin er sterk og handtakið
þétt. Málflutningurinn er skýr.
Heitfeng og óskilyrt kærleiksþjónusta
Það er ekki spurning að Tolli, ekki síður en Bubbi bróðir, er
með stórt egó. Og báðir hafa þeir sótt í lífsháskann, eitrið og
síðan AA. Það er þeirra ógæfa og gæfa. Þegar litið er til Tolla
og tilfinninga hans, þá má sjá tvennt. Tunglið er í hinu einlæga
Ljóni. Og já, Tolli er hlýr. Hann er sterk Meyja og er því iðju-
samur og með afbrigðum duglegur. Kærleikur í augum Tolla er
óskilyrtur og þarf að dreifast til allra. Þessi eiginleiki er stöðugt
að koma betur í ljós. Tolli er andlega sinnaður í öðru veldi, þ.e.a.s. fókus til-
finninga hans er í þágu þjóðarinnar allrar og ekki síst þeirra sem hafa beðið
lægri hlut. Hann er maður sem vill gefa af sér.
Fljúgandi náttúrugreind
Það sem ekki er síst athyglisvert við Tolla liggur á sviði
mælsku og vitsmuna. Þeir bræður, Tolli og Bubbi, búa yfir nátt-
úrugreind. Tolli er með mýkra tölt, Bubbi er brokkgengari, en
báðir eru skarpir. Það merkilega er að Tolli hefur djúpa sýn
inn á svið alheimsvídda. Hann er tengdur almættinu á sterkari
hátt en flestir aðrir. Ha, gæti einhver spurt, en já, þannig er
það. Tolli býr yfir djúpu innsæi. Hann er frábær myndlist-
armaður. Hann er sömuleiðis andlegur hugsuður. Hann hefur afbragðs hæfileika
sem ræðumaður og rithöfundur. Næst þegar Tolli heldur ræðu um kærleikann,
hjá einhverju ágætu félagi, farðu á staðinn og hlustaðu. Og þú munt sjá ljósið.
Ráðleggingar til Tolla
Hvaða ráð er hægt að gefa manni sem augljóslega er afreks-
maður á sínu sviði? Ég vil gefa honum sömu ráð og ég gef öll-
um Vogum. Þau hafa með jafnvægi að gera. Vogin þarf að gæta
jafnvægis á milli ég-skálarinnar og við-skálarinnar. Hér er ég að
vísa til þess að tákn Vogarinnar er vogarskál. Hún þarf að gæta
þess að næra eigin þarfir en taka um leið tillit til annarra.
Tolli. Þú hefur séð ljósið. Mannkynið þarf á núvitund að
halda. Sálarsímar fanganna á Hrauninu þurfa að komast inn á þjónustusvæði
meðborgara sinna. Þú ert að hjálpa þar. Glæsilegt. Jafnvægi. Ferðalag út í ei-
lífðarnúið má ekki leiða til þess að þú gleymir kærleikanum í eigin bakgarði,
konu, börnum og hundi. Sem sagt, gæta þarf jafnvægis á milli þess að eiga
einkalíf og félagslíf. Þetta er til ykkar allra sem eruð sterk í Voginni, ekki
bara Tolla. Kærleikurinn er óendanlegur, vissulega, í en höndunum á okkur
dauðlegum, þarf að gæta þess að hann þynnist ekki út í terpentínu og verði
þar með án lita.
Tolli. Hvað er þetta með rúmfötin? Ég veit að þú hefur gaman af því að
ögra umhverfinu og þenja þolmörkin. Hengja upp myndir á verkstæði. Setja
þær á úlpur. Hluti af ímynd þinni er hinn litríki og náttúrulegi hráleiki. Það að
þekja stóra myndfleka og hengja upp á verkstæðum á vel saman. En rúmföt?
Þar ertu að dansa á mörkum þess að verða ‘sírópslegur’. En, ég veit að það er
partur af þinni snilld að gera það sem þér sýnist, þannig að þú kemst upp
með þetta.
Að lokum Tolli, ég tel að þú eigir að leggja jafnmikla rækt við ritlistina og
málaralistina. Þar liggja víddir sem geta opnað nýja vegarslóða. Þú hefur litina,
formið og orðið. Þar liggur hin heilaga þrenning. Amen.
Andlegur hugsuður
með glampa í augum
ÞORLÁKUR KRISTINSSON MORTHENS – TOLLI – KOM INN Í ÞENNAN HEIM 3. OKTÓBER 1953, KL. 05.05 AÐ
MORGNI Í REYKJAVÍK. Á ÞEIRRI STUNDU VAR SÓLIN (GRUNNEÐLI OG LÍFSORKA) OG MERKÚR (HUGSUN) Í
HINNI LISTRÆNU, FÉLAGSLYNDU OG KÆRLEIKSRÍKU VOG. TUNGLIÐ (TILFINNINGAR OG VANAHEGÐUN) VAR
Í HINU SKRAUTLEGA, HEITFENGA OG EINLÆGA LJÓNI. VENUS (KÆRLEIKSORKAN), MARS (BARÁTTUORKAN)
OG RÍSANDI (FRAMKOMAN) VORU Í HINNI DUGLEGU OG IÐJUSÖMU MEYJU. MIÐHIMINN (MARKMIÐ) VAR Í
HINUM MÁLGEFNA OG FJÖLHÆFA TVÍBURA.
ÕGrunneðli
]
Vitsmunir
Y
Tilfinningar
Ráðleggingar
Morgunblaðið/Ómar
Stjörnukortið
GUNNLAUGUR GUÐMUNDSSON
www.islenskstjornuspeki.is
Vogin 23. september til 22. október
Frumefni Vogarinnar er loft. Loftið tengir og dreifir. Það flytur súrefni, fræ og hljóð frá einum stað
til annars. Það er óáþreifanlegt og altumlykjandi. Það er heimur hugmynda og tengsla. Vogin spannar
fyrsta fasa haustsins. Orka lífsins stígur jafnvægisdans milli birtu og myrkurs, hita og kulda. Náttúran
skartar fögrum litum. Uppskera er sett á vogarskálar og afrakstri er skipt. Það að leita jafnvægis, samvinnu og
harmóníu er því skráð í náttúrugen Vogarinnar.
s
Tolli er sonur Guðbrands Kristins Mort-
hens listmálara og Grethe Skotte Pedersen
húsfreyju, frá Lálandi í Danmörku.
Hann fæddist í Reykjavík og ólst þar upp.
Á sumrin var Tolli með móður sinni og
bræðrum í Fjallakofanum við Meðalfellsvatn í
Kjós, meðan faðir þeirra sinnti myndlist í
bænum. Kofann byggði faðir hans um það
leyti sem Tolli var í móðurkviði.
Tolli var í Vogaskóla til 16 ára aldurs, hóf
nám í nokkrum framhaldsskólum en sneri
sér svo að myndlist. Stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskólann í Reykjavík frá
1974, útskrifaðist þaðan 1982 og nam við
Listaháskólann í Vestur-Berlín 1983-84.
Hann hefur starfað við myndlist frá náms-
lokum í Berlín.
Tolli hefur haldið fjölda einkasýninga, hér
á landi og erlendis. Hann hefur árum saman
verið einn virtasti og eftirsóttasti myndlist-
armaður hér á landi. Verk hans eru í eigu
helstu listasafna landsins, sveitarfélaga og
fjölda fyrirtækja og einstaklinga.
Tolli tók vígslu í tíbetskum búddisma, Ka-
gye-línu, 2009, fór pílagrímsför til Kailash í
Vestur-Tíbet 2010 og hefur ferðast um Tíbet
og Nepal.
Eiginkona Tolla er Gunný Ísis Magn-
úsdóttir.
Börn Tolla: Ásdís Þorláksdóttir, Magnús
Morthens (fóstursonur), Kristín Þorláks-
dóttir og Karen Lísa Morthens.
Bræður Tolla: Arthur Morthens, Sveinn
Allan og Ásbjörn (Bubbi). Fósturbróðir
Arthurs er Bergþór. Hálfsystkini Tolla: Ævar,
Ágúst og Hjördís Morthens.
ÞORLÁKUR HILMAR MORTHENS MYNDLISTARMAÐUR
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21.12. 2014