Morgunblaðið - Sunnudagur - 21.12.2014, Side 51
Heklusetur er 700 fm byggingsem var sérstaklega byggð til að
hýsa safn um eldfjallið Heklu og
tengda starfsemi; Heklusýninguna,
ráðstefnusal og veitingahús.
Gamli bæjarhóllinn er hluti af arki-
tektúr hússins og náttúruleg efni
svæðisins eru partur af byggingunni.
Hraungrýti sem sótt er til Heklu er
notað í byggingunni bæði úti og inni.
Nálægðin við eldfjallið magnar upp
þetta einstaka samspil náttúru og
byggingarlistar.
Byggingin er óður til Heklu og
hönnuð til að vera órjúfanlegur hluti
af upplifun safnsins/sýningarinnar og
inn í þá stórkostlegu náttúru sem
umlykur eldfjallið að sögn Hlédísar.
Byggingin er fléttuð inn í hraun-
breiður og jarðlög, íslenskt hraun er
notað sem klæðning, á steypta veggi
byggingarinnar, aðferð sem sér-
staklega var þróuð fyrir bygginguna.
Þannig mætir gestum við komu að
Heklusetrinu hár hraunveggur, þar
sem dyr og gluggar eru skornir inn í
klettinn og þar með notuð gömul
þjóðsagnaminni um að gestir gangi í
björg er þeir koma inn í húsið.
Byggingin er byggð með nútíma-
tækni, þ.e. skelin er steinsteypt, en
umslag byggingarinnar er klætt hrauni
og grasi með vísan í íslenskar hefðir/
byggingasögu og fellir bygginguna
þannig inn í náttúruna.
Efniviður er hraun, torf/gras, þá
eru hlutar byggingarinnar klæddir
með Jatoba-harðvið (sem er eini
efniviðurinn sem notaður er sem
ekki er sóttur í íslenska náttúru) auk
þess eru einstaka byggingarhlutar
klæddir cortain-stáli. Aðalburðarvirki
byggingarinnar, óreglulegum for-
steyptum bitum, yfir veitingasal er
haldið uppi með ómeðhöndluðum
stórum aldagömlum trjádrumbi sem
sóttur var til Hornstranda.
Þegar gengið er inn í sýningarhluta
byggingarinnar er sem gengið sé und-
ir yfirborð jarðar. Gengið er niður í
safnið, líkt og gengið sé undir hraun-
ið, inn í helli undir hraunbreiðum
eldfjallsins. Byggingin fylgir gestum
eftir sýningum safnsins og leiðir inn í
innviði eldfjallsins: „Hliðið að miðju
jarðar.“
Form byggingarinnar leiðir áhorf-
anda í gegnum safnið, sem segir sögu
Heklu á margvíslegan hátt, langt aftur
í aldir og skýrir eðli eldgosa. Áhorf-
endur upplifa eldgos á einstakan hátt
en þar spilar nútímatölvutækni stór-
an þátt og myndar bæði hraun-
strauma og kvikugíga. Miðpunktur
sýningarinnar er Hekla sjálf sem birt-
ist í öllu sínu veldi, í gegnum alla sýn-
inguna.
Úr bæði sýningar- og veitingasal
hússins er óviðjafnanlegt útsýni til
Heklu.
HEKLUSETUR
Fléttuð inn í hraunbreiður
Ljósmynd/Art Gray
21.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 51