Ský - 01.01.2006, Page 11
M
at fólks á fegurð er að mestu
huglægt og bundið menningu
okkar sem og tíðaranda hverju
sinni. Við Íslendingar erum
fámenn þjóð en getum samt sem áður státað
af fjölmörgum fögrum dísum sem hafa verið
sigursælar í fegurðarsamkeppnum víða um
heim. Margar þeirra hafa hlotið alþjóðlegar
viðurkenningar og starfað sem heimsfrægar
fyrirsætur.
Fyrsta formlega fegurðarsamkeppnin sem
haldin var hér á landi fór fram árið 1930 og
voru úrslitin kunngerð á Alþingishátíðinni
á Þingvöllum. Smám saman skapaðist hefð
fyrir fegurðarsamkeppnum. Var af mörgum
talið mikilvægt að Íslendingar væru ekki
eftirbátar annarra þjóða í þessum efnum
og svona keppnir væru góð leið til að vekja
athygli á land og þjóð.
Skemmtigarðurinn Tívolí í Reykjavík var
heppilegur vettvangur fyrir keppnirnar og
voru kvöldin þar lengi í minnum höfð.
Síðan höfum við eignast heimsfegurðar-
drottningar, eins og Lindu Pétursdóttur og
Hólmfríði Karlsdóttur, sem hvert manns-
barn á Íslandi þekkir og hafa skipað sér í
raðir þjóðhetja. Það er víst óhætt að segja
að við séum enn í sigurvímu eftir að Unnur
Birna Vilhjálmsdóttir var kjörin Ungfrú
Heimur undir lok ársins 2005 og okkur á
Skýjum var sönn ánægja að fá hana í viðtal.
sk‡ 11
Í FEGURÐARSAMKEPPNUM
Texti: Hrund Hauksdóttir
Myndir: Ýmsir
Guðrún Bjarnadóttir var
valin Ungfrú Ísland 1962.
Stúlkurnar sem komust í
úrslit í fegurðarsamkeppn-
inni, f.v Auður Aradóttir
nr. 5, Anna Geirsdóttir
nr. 2 Ungfrú Reykjavík,
Guðrún Bjarnadóttir,
Líney Friðfinnsdóttir nr. 3,
Rannveig Ólafsdóttir nr. 4
og Guðný Á. Björnsdóttir
nr. 6.
M
Y
N
D
Ú
R
L
JÓ
S
M
Y
N
D
A
S
A
FN
I Ó
LA
FS
K
.
M
A
G
N
Ú
S
S
O
N
A
R
/M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
S
IN
S
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
/Þ
O
R
K
E
LL
Þ
O
R
K
E
LS
S
O
N
G
E
IR
Ó
LA
FS
S
O
N
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir.
Linda Pétursdóttir.
Fegurðardrottningar