Ský - 01.01.2006, Síða 15
sk‡ 15
á góðgerðarstarf á vegum Miss World en eins og er veit
ég lítið hvernig því verður háttað. Við erum ekki byrjuð
að safna en starfið snýst fyrst og fremst um að safna fé
til hjálpar bágstöddum. Það getur t.d. verið í formi upp-
boðs eða ég verði í hlutverki kynnis við ýmis tækifæri og
taki þátt í stórum fjáröflunarsamkomum. Ef einhverjar
hamfarir verða á árinu, förum við strax á vettvang til
að taka þátt í hjálparstarfi. Annars er fyrirkomulagið á
vinnuárinu framundan ósköp svipað og dagarnir voru
fyrir keppnina úti í Kína, þ.e. lítið skipulag, raunar
óskrifað blað.“
- Hvað tekur við eftir að þú skilar kórónunni og
krýnir Ungfrú Heim 2006?
„Miss World 2006 verður haldin mun fyrr á árinu en
tíðkast og að þessu sinni verður hún þann 30. september
í Póllandi. Það er því styttra ár en venjulega hjá Ungfrú
Heimi og ég er ósköp sátt við það. Ég býst við að verða
önnum kafin fram að þeim tíma og gæti trúað að þegar
líða tekur að hausti langi mig til að snúa mér aftur að námi
og eðlilegu lífi hér heima. Þá get ég farið að einbeita mér
að fullum krafti að skólanum og býst við að vera við nám
næstu 5-6 árin.“
Viðtalinu er lokið og fegursta kona veraldar brosir
kankvíslega þegar hún segist vera á leiðinni upp í fjall.
Dansarinn og hestakonan nýtur þess nefnilega að hamast
á snjóbretti í snævi þöktum fjöllum. Þjóðarstoltið okkar er
fjölhæf stúlka.
Fegurðardrottningar
Unnur Birna Vilhjálmsdóttir, Ungfrú heimur 2005, og
móðir hennar, Unnur Steinssen, Ungfrú Ísland 1983.
Unnur Steinsson
Fulltrúi ungu kynslóðarinnar 1980
4. sæti Miss Young International 1980
Ungfrú Ísland 1983
Árið 1980 var ákveðið að endurvekja keppn-
ina um Fulltrúa ungu kynslóðarinnar og það
var Unnur Steinsson, 17 ára námsmær úr
Versló, sem bar sigur úr býtum í keppninni.
Hún hafði starfað töluvert með Módelsamtök-
unum og var alvön sviðsframkomu. Unnur
fór síðan til Manila á Filippseyjum og tók
þátt í Miss Young International og náði 4.
sæti. Hún gerði sér svo lítið fyrir og vann
titilinn Ungfrú Ísland árið 1983. Sama kvöld
var frumflutt lag eftir Gunnar Þórðarson,
Tilbrigði við fegurð, sem hefur æ síðan verið
fastur liður í Fegurðarsamkeppni Íslands.
Þegar Unnur var krýnd bar hún Ungfrú Heim 2006, Unni Birnu Vil-
hjálmsdóttur, undir belti.
- En hvernig upplifun skyldi það vera sjá dóttur sína krýnda
Ungfrú Heim?
„Mér varð að sjálfsögðu mjög hlýtt innanbrjósts,“ segir Unnur. ,,Stelpan
mín var vinna alheimskeppni, hver myndi ekki vera hoppandi glaður yfir
því og ég tala nú ekki um stoltur.“
- Hver var mesti lærdómurinn sem þú dróst af þátttöku þinni
í fegurðarsamkeppnum, efldi það sjálfstraustið?
„Ég hef alltaf haft ágætis sjálfstraust og þegar ég var að taka þátt í feg-
urðarsamkeppnum átti ég í litlum vandræðum með að koma fram eða
umgangast fólk. Reynslan sem ég fékk út úr þessu var kannski fyrst og
fremst hvernig maður lærir að þekkja fólk. Það er nefnilega vandlifað að
vera almannaeign.“
- Hefurðu áhyggjur af öllu umstanginu í kringum Unni Birnu?
„Nei, það hef ég ekki. Unnur Birna er mjög ákveðin og sjálfstæð persóna
með fallegan hugsunarhátt. En hún er engu að síður viðkvæm og tilfinn-
ingarík og má ekkert aumt sjá. Hún er alveg á jörðinni með þetta og lítur
ekki á sig sem eitthvað annað en hún er. Ef hún lenti í vandræðum með
eitthvað þá á hún frábæra vini og fjölskyldu sem væru fyrst til aðstoðar,
þannig að ég segi stórt nei, ég hef ekki nokkrar áhyggjur af henni.
Ég vona bara að hún nái að blómstra í því sem hún er búin að ráða sig
íþetta árið og reyni að njóta þess í leiðinni. Þessi tími kemur ekki aftur
og því verður hún að fá eins mikið úr ævintýrinu og hún getur. Ég vona
líka að hún geti litið til baka eftir 5, 10 eða 15 ár og verið stolt af því sem
hún hefur áorkað.“
M
O
R
G
U
N
B
LA
Ð
IÐ
/J
Ó
N
S
V
A
V
A
R
S
S
O
N
sky
,