Ský - 01.01.2006, Blaðsíða 77
sk‡ 77
Byrjaði snemma að leika
Það gefur auga leið að 21 árs gömul stúlka, sem hefur leikið í 26
kvikmyndum, hlýtur að hafa byrjað snemma. Scarlett segist alltaf
hafa verið ákveðin í að verða leikkona og fékk sitt fyrsta kvikmynda-
hlutverk níu ára gömul í North, þar sem mótleikari hennar var Elijah
Wood, önnur barnastjarna, sem náði að lenda farsællega á listabraut-
inni þegar unglingsárin tóku við.
Þegar Scarlett Johansson var 13 ára gömul hafði hún leikið í
sex kvikmyndum. Þá var henni boðið hlutverk stúlku í The Horse
Whisperer (1998), sem slasast mikið þegar flutningabíll ekur á hana
þegar hún er á hestbaki. Myndin, sem skartaði Robert Redford og
Kristin Scott Thomas í aðalhlutverkum, fékk mikla aðsókn og góða
umfjöllun, þá ekki síst leikur Scarlett. Var hún valin af Hollywood
Reporter besta ungstirni ársins.
Tilboðin létu ekki á sér standa. Hún lék í nokkrum kvikmyndum
sem eru lítt eftirminnilegar, meðal annars Ghost World og Eight
Legged Freaks, meðfram því að stunda hefðbundið skólanám. Stóra
stökkið inn í framtíðina kom svo þegar Sofia Coppola bauð henni
annað aðalhlutverkið í Lost in Translation (2003). Þar lék hún unga
stúlku sem vingast við útbrunninn bandarískan leikara í Tokyo. Bæði
hún og Bill Murray fengu mikið lof fyrir leik sinn og Scarlett fékk
bresku kvikmyndaverðlaunin 2004. Sama ár lék hún í The Girl With
The Pearl Earring og stóð sig ekki síður þar í hlutverki stúlkunnar
sem hollenski málarinn Johannes Vermeer málaði. Má geta þess að
Scarlett fékk tilnefningar til Golden Globe verðlaunanna fyrir báðar
þessar myndir sama árið.
Á síðustu tveimur árum hefur Scarlett Johansson verið óstöðvandi
og leikið í hverri myndinni á fætur annarri. Þær sem þegar hafa verið
sýndar eru The Perfect Score, gamanmynd um sex háskólanema sem
brjótast inn á skólaskrifstofu til að hnýsast í væntanleg próf; í A Love
Song For Bobby Long lék hún á móti John Travolta, stúlku sem
leitar uppruna síns í New Orleans; The Good Woman þar sem hún
lék Lady Windermere í kvikmynd sem gerð er eftir leikriti Oscars
Wilde; In Good Company, rómantísk gamanmynd þar sem mót-
leikari hennar var Dennis Quaid og The Island, sem er fyrsta stóra
Hollywood-mynd hennar. Ekki var hún ánægð með frammistöðu
sína þar og hefur lítinn áhuga á að leika í slíkri mynd aftur.
Nýjasta kvikmynd Scarlett er Match Point og er greinilegt að
Woody Allen er aðdáandi því hann fékk hana til að leika einnig í
næstu mynd sinni, Scoop, sem þegar er búið að kvikmynda og er í
eftirvinnslu. Hún átti samt ekki að fá hlutverkið í Match Point. Allen
hafði tekið það frá fyrir Kate Winslet, en þegar hún dró sig í hlé hljóp
Scarlett í skarðið.
Danskrar ættar
Scarlett Johansson fædd-
ist í New York 22. nóv-
ember 1984. Foreldrar
hennar eru Karsten
Johansson, danskur arki-
tekt, og Melanie Johans-
son, sem er pólskrar
ættar. Foreldrar hennar
skildu þegar hún var 13
ára gömul. Afi hennar í
föðurætt er Ejnar Johans-
son, rithöfundur sem einnig gerði heimildakvikmyndir. Scarlett á tví-
burabróður, Hunter, og er hún þremur mínútum eldri og einhverra
hluta vegna telur hún þessar þrjár mínútur hinar mikilvægustu í lífi
sínu. Systkinin eru fjögur og eru tvíburarnir yngstir.
Eins og áður sagði var Scarlett alltaf ákveðin í að gerast leikkona
og sem barn sótti hún leiklistartíma í hinu fræga leiklistarstúdói Lee
Strasbergs í New York. Það leiddi til þess að hún fékk sjö ára gömul
hlutverk í leikritinu Sophistry, þar sem Ethan Hawke var í aðalhlut-
verki. Að öðru leyti var ekki mikið um hefðbundið skólanám. Átján
ára gömul lauk hún framhaldsskóla og sótti um að komast í kvik-
myndagerðarnám við Purchase University í New York. Henni til mik-
illa vonbrigða var henni neitað um skólavist og ákvað þá að einbeita
sér að leikferlinum, sem hefur svo sannarlega borgað sig.
Scarlett Johansson hefur ekki látið deigan síga og eru sex kvik-
myndir í farvatninu, sem sýndar verða á næstu tveimur árum. Áður-
nefnd Scoop er tilbúin til sýningar. Síðar á þessu ári verður sýnd
The Black Dahlia, sem Brian De Palma leikstýrir og eru meðleikarar
Joss Hartnett og Hilary Swank. Verið er að gera The Prestige, sem
Christopher Nolan leikstýrir, þar sem meðleikarar eru Christian
Bale, David Bowie, Hugh Jackman og Michael Caine og The Nanny
Diaries þar sem Scarlett leikur barnfóstru hjá ríkri fjölskyldu í New
York. Þá hefur verið tilkynnt um tvær kvikmyndir enn sem verða
sýndar á þessu og næsta ári. Önnur er Borgia, í leikstjórn Neils Jor-
dan, þar sem hún leikur hina alræmdu Lucreziu Borgia, og hin er
Amazon, sem lítið er vitað um.
Það er því óhætt að segja að framtíðin sé björt hjá Scarlett Johans-
son. Það virðist samt sem frægðin hafi ekki haft mikil áhrif á líf
hennar, en hún viðurkennir þó að lífið sé mun þægilegra nú þegar
hún er komin í hóp svokallaðra A-lista leikara í Hollywood. Hún
ráði sjálf hvað hún tekur sér fyrir hendur og það haldi sköpunargáf-
unni við. Þar með er ekki sagt að hún sé hrifin af Hollywood: „Allir
í Hollywood eru svo grannir að þegar ég er þar þá finnst mér ég vera
langt í frá að vera grönn. Ég er þannig í vexti að ég get aldrei orðið
mjóna. Þá hefur stressið í Hollywood og dýrkunin á ungu kynslóð-
inni þau áhrif á mig að ég er þegar farin að nota andlitskrem til að
yngja húðina þótt ég þurfi þess alls ekki. Ég reyni að láta stressið í
Hollywood ekki hafa áhrif á mig, en án árangurs, og sé maður þar án
einhverra ástvina er það einmanalegasti staður á jörðinni.“
Scarlett Johansson í nýjustu kvikmynd sinni, Match Point.
Með Bill Murray í Lost in Translation,
kvikmyndinni sem gerði Scarlett
Johansson að stjörnu.
Kvikmyndir
Texti: Hilmar Karlsson
sky
,