Ólafía : rit Fornleifafræðingafélags Íslands. - 01.05.2012, Blaðsíða 62
fornleifafræði almennt. Í lokaköflunum
verður vikið nánar að rannsóknum á
börnum og bernsku, fyrst á alþjóðlegum
vettvangi en endað á rannsókn þeirri
sem þessi grein tekur til.
Hugmyndir um börn á miðöldum
Það er viðurkennt meðal fræðimanna að
hugtökin barn og bernska eru félagslega
mótuð. Hugmyndin um eitt barn sem
hægt er að yfirfæra á samfélög, bæði í
nútíð og fortíð, er að leysast upp og
farið að kalla eftir skýrari rannsóknum á
þessu sviði (Fahlander 2008).
Nauðsynlegt er að greina á milli þessara
hugtaka, því saga barnsins er ekki sú
sama og saga bernskunnar. Bernskan er
afstæð og tilgangur hennar í raun að
flokka einstaklinga í einsleitan hóp.
Þetta er í mótsögn við það sem orðið
börn felur í sér (Heywood 2005, bls. 25
-26). Eitt fyrsta vandamálið sem kemur
upp í hugann þegar skoða á börn fyrr á
öldum er hversu síbreytileg menningin
er. Er hægt að gera ráð fyrir því að
miðaldabörn hafi líkst nútímabörnum
eða má búast við einhverju ólíku?
Því miður hefur ekki verið mikið
skrifað um miðaldabörn í Evrópu.
Oftast er það í tengslum við kóngafólk,
yfirstéttir eða dýrlinga. Fræðimenn telja
engu að síður að viss skil hafi orðið í
lífsferli barna í flestum samfélögum
evrópskra miðalda þegar þau urðu 2 ára,
7 ára og á táningsárunum og að
ákveðnir eiginleikar hafi einkennt hvert
þessara stiga (sjá t.d. Nicholas Orme
2001; Brynhildur Þórarinsdóttir 2005).
Einnig hefur því verið haldið fram að á
miðöldum hafi verið litið á bernsku sem
þroskastig frekar en fast ástand. Það
gefur til kynna að fólk hafi haft vissan
skilning á eðli vaxtar og þroska
(Heywood 2005, bls. 32).
Það liggja heldur ekki miklar
upplýsingar fyrir um íslensk börn á
miðöldum og fáar rannsóknir hafa verið
gerðar á lífi þeirra. Til voru lagalegar
skilgreiningar á hugtakinu barn, ef
marka má ritheimildir, líkt og nú á
dögum. Ef tekið er mark á Grágás sem
rituð var á fyrri hluta 12. aldar virðist
þar vera miðað við tvo áfanga, 12 og 16
ára, við skilgreiningar á því hvað var að
vera fullorðinn. Þessi viðmið eru samt
nokkuð óljós og hefur þroski
einstaklinga mögulega ráðið meiru en
eigin lífaldur (Brynhildur Þórarinsdóttir
2005, bls. 117).
Í bókinni Miðaldabörn kemur skýrt
fram að einstaklingar hérlendis á
miðöldum skiptust ekki endilega í
tvennt; börn eða fullorðna, heldur fleiri
flokka (Ármann Jakobsson og Torfi H.
Tulinius 2005, bls. 9-10). Innihald
lagabálkanna Kristniréttur Árna
Þorlákssonar og Járnsíða, sem tóku við
af Grágás á seinni hluta 13. aldar og
voru í notkun fram á miðja 14. öld, var
óbreytt frá því sem áður var en
orðalagið annað og mun almennara. Þar
er farið að tala um börn, menn, konur,
dætur og syni (Járnsíða 2005, bls. 97).
Löggjöf 12. og 13. aldar ber einnig
merki um verndun á lífi fósturs og
ungbarna, t.d. máttu þungaðar konur
ekki fasta né konur með barn á brjósti
(Grágás 1992, bls. 33, 237).
_________
62
Þegar á unga aldri lifi ég enn
Áþreifanlega vantar rannsóknir á
börnunum sjálfum, hugmyndum þeirra,
leikföngum, fjölskylduskipan, vinnu-
álagi, heilsu, menntun en svo mætti
lengi telja. Það vantar sem sagt
raunsanna og óbreglaða mynd af
börnunum byggða á þverfræðilegum
rannsóknum.
Rannsóknir á börnum
Upphaf rannsókna á börnum má rekja
til 19. aldar en þá voru skjalfestar
lýsingar um siðvenjur og athafnir
tengdar börnum hvarvetna bundnar við
ferðalýsingar. Strax þá kom engu að
síður skýrt fram að fjölbreytni væri á
milli fólks í heiminum, hvernig best
þætti að ala upp börn og hvað væru
eðlileg þroskastig (LeVine 2007, bls.
248). Þegar fyrstu þjóðlýsingarnar
komu út á fyrri hluta 20. aldar innihéldu
þær gjarnan upplýsingar um börn.
Áhersla var þá lögð á vígsluathafnir
(e. rites of passage), t.d. í sambandi
við fæðingu, kynþroska og umskurð án
þess að fjalla um börnin á þeirra eigin
forsendum (Baxter 2005, bls. 4-5).
Það var ekki fyrr en um 1950 í
kjölfar hugmynda um menningar-
bundinn persónuleika sem börn voru
skoðuð á þeirra eigin forsendum og
fyrstu kenningarnar um bernsku
þróuðust innan mannfræðinnar. Var þar
m.a. stuðst við kenningar Freuds. Frá
því um 1960 hefur félagsmótun verið
einkennandi fyrir meirihluta rannsókna
á börnum. Það var einmitt í þessum
anda sem Philippe Ariés lagði þá fyrstur
fræðimanna fram heildstæðar kenningar
um börn (Baxter 2005, bls. 6;
Montgomery 2005, bls. 474). Um 1970
fóru börn að verða rannsóknarefni
mannfræðinga, ekki sem hlutlausar
verur sem mótaðar voru af öðrum,
heldur sem einstaklingar metnir á eigin
verðleikum. Jafnframt var reynt að __________
63
Ragnheiður Gló Gylfadóttir
Mynd 1. Bernskan er sameiginleg öllum
samfélögum og þess vegna er hún mikilvægt
viðfangsefni í fornleifafræði.