Dagrenning - 01.10.1948, Side 6

Dagrenning - 01.10.1948, Side 6
JÓNAS GUÐMU N DSSON: íí. nóvember 1948. i. (CÍÐASTI spádómsdagur Pýramidans mikla á þessu ári er n. nóvember n.k. eins og oft hefir verið vikið að hér í ritinu. Um þann dag var rætt á íslenzku meðal annars í „Vörðubrotum“, en þau komu út 1944. Eins og oft hefir verið bent á, stendur nú yfir, og er þó senn að lokum komið, tíma- bil, sem Pýramidinn mikli merkir greinilega og kallað er á máli pýramidafræðinga „Skrín- tímabilið“ (T'he Coffer Period) og fær nafn sitt af hinni „opnu gröf“ eða steinskríni, sem stendur á miðju gólfi í Konungssal Pýra- midans mikla. Fjórar dagsetningar eru greinilega merkt- ar á þessu „skríntímabili“. Hin fyrsta þeirra er 25. júní 1941, önnur er 20.—21. desember 1941, sú þriðja er 16—17. maí 1948 og sú síðasta 10.—11. nóvember 1948. Þrjár þessara dagsetninga eru nú liðnar hjá og oss er kunnugt um, hvað gerzt hefir í sambandi við þær. Fyrsta dagsetningin, 25. júní 1941, mark- aði frelsun hinna engilsaxnesku þjóða undan hinni yfirvofandi nazistahættu, með því að þá réðust Þjóðverjar á Rússa og eyðilögðu þannig möguleika sína til frekari sóknar í vestur. Frá þeim degi tóku og mjög að eflast samskipti Breta og Bandaríkjamanna, en þau höfðu fram til þess tíma verið mjög örðug, sökum hinnar svonefndu einangrunarstefnu Bandaríkjanna. Þessi samskipti styrktust æ meir, eftir því sem leið á árið 1941, og eftir 4 DAGRENNING árás Japana á Pearl Harbour, 7. desember 1941, fóru Bandaríkin í stríðið. Varð þá enn nánara samstarf milli Bandaríkjamanna og Breta og má segja, að það hafi verið full- komlega innsiglað sem algjört hernaðar- bandalag 21. desember 1941, er Churchill flaug til Bandaríkjanna í því skyni að gera beina samninga um þátttöku Bandaríkjanna í Evrópustyrjöldinni. Báðir þessir dagar, sem Pýramidinn mikli sýndi svo greinilega á almanaki sínu, reyndust því hinir merkustu dagar á þeirri leið að sameina Ísraeísþ/óðirnar í baráttunni gegn sameiginlegum óvini. Hinar dagsetningarnar tvær, er svara til þessara, sem nú hafa verið nefndar, eru 16. —17. maí 1948 og 10.—11. nóvember 1948. Dagana 15.—17. maí 1948 var hið nýja ísra- elsríki stofnað í Palestínu, og verður nánar vikið að því atriði síðar og þýðingu þess fyrir þróun og gang heimsstjómmálanna á næstunni. Nú er röðin komin að 10.—11. nóvember og er rétt að reyna að gera sér grein fyrir, hvað þá muni verða. II. YRST er rétt að gera sér það Ijóst, að mælingin 10.—11. nóvember er — eins og allar þær, sem nefndar eru hér á undan, — í Konungssalnum en ekki í Neðanjarðar- salnum. Af því leiðir það, að dagsetningin L

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.