Dagrenning - 01.10.1948, Blaðsíða 15

Dagrenning - 01.10.1948, Blaðsíða 15
í stjörnuspá Georgs konungs V. er „þrí- ömiungurinn", eða merki reikistjömunnar Neptúnusar, í hinu „rísandi merki á fæð- ingaraugnabliki hans. Þetta þýðir það, að hneigð hans og þrá stefnir að sjónurn og sjómannalífi. Þetta skýrir og hjartanlega alúð lians og enda hæfileika til að sýnast, eins og House offursti drepur á í bréfum sínum. Hann hefir með réttu verið nefndur „kon- ungur sjómannanna“, svo sem var forfaðir hans, Vilhjálmúr IV., sem einnig var fædd- ur undir rnerki Neptúnusar. Er lesið var í stjörnurnar fyrir Georg kon- ung, var Júpíter á miðjum hirnni í níunda stjörnumerki og í sterkri afstöðu við Aries, — þ. e. hrútsmerkið, — sem er stjörnu- rnerki Englands. Og það stóð ritað í stjörnunum. að hann, sem var sjómaður og yngri sonur, skyldi upphefjast til kon- ungs og bera kórónu, og það enda þótt hann hefði ekki gert sér neinar vonir um slíkt, þar eð bróðir hans, hertoginn af Clar- ence, var borinn til að erfa konungstign. Það voru stjörnurnar, sem lögðu konungsskvkkj- una á herðar Georgi og sveipuðu hann blæju hins óbrotna virðuleika, sem fer honum vel sem þjóðhöfðingja. En ef vér athugum afstöðu Satúrnusar, sjáum vér að hann boðar óheill á ríkisstjórn- arárum hans, ekki sízt er vér minnumst þess einnig, að einmitt þessi reikistjarna er í stjörnumerki því, er Rússland heyrir undir. Stjarna þessi boðar Georgi konungi illt, Viktoría drottning var fædd 14. maí. Sama drottning kom til ríkis 20. júni. Orustan við Waterloo var 18. júní. Georg II. kom til ríkis 11. júní. Vilhjálmur I\'. kom til ríkis 26. júní. Játvarður VII. dó 6. maí 1910. Georg V. kom til ríkis 6. mai 1910. Sami konungur kvæntist 6. júlí 1893, og var krýndur í Westminster Abbey 22. júní 1911. Þýkaland undirritar friðarsáttmálann 28. júní igig. svo og Aries, sem er hið sérstaka stjömu- merki Englands. Afstaða hennar er fjand- sarnleg og skaðvænleg áhrif hennar aukast, er kemur fram á árið 1926 og árin þar á eftir. Hún boðar ólgu og óró í hugurn fólks, yfirgripsmikil og eyðileggjandi verkföll, verzl- unarhöft og vandræði á viðskiptasviðinu, komandi stríð og stvrjöld í þeim löndum, sem hggja beint undir áhrifum hennar, svo sem Indlandi, Kína og Rússlandi, og hvað snertir konung vorn, boðar hún honum raunir og erfiðleika, sem loks lamar krafta hans og sýkja líkama hans, einkurn tauga- kerfið, maga og meltingarfæri. Áhrif stjörnu þessarar á Georg konung og líf hans munu verða mjög augljós og honurn óhagstæð á árunum frá 1928—1930. Vér sjá- um fyrir, að þessi ár munu færa konungs- fjölskyldunni og öllu Bretaveldi erfiðleika og sorgir. Alls konar hættur og slys munu liggja í levnum fyrir konunginum á þessu tíma- bili, einkúm stafandi úr eða frá loftinu. Þessir skuggalegu, uggvænu forboðar varða allt Bretaveldi, en þó einkum London, sem liggur undir áhrifum tvíburamerkisins, „fvrsta stjönmineiki loftsins“. Á árunum 1927, 1928 og til 1930 eru því forboðar Jiessir slæmir fyrir England og kon- ungsættina alla, nema hertogann af York. (Þ. e. núverandi konung Breta, Georg VI.) Hvað hann snertir er það áberandi, að áhrif Júpíters til konungdóms hans aukast mjög, er stundir líða, og var það sania tilfellið með hinn konungíega föður hans, áðui en nokkrar Jíkur virtust til þess að Iiann tæki veldisspiotann. (Leturbr. hér.) María drottning sleppur ekki fremur en konungurinn við fjölda af Jiessum óhollu áhrifum. Og skugginn hnígur einnig yfir prinsinn af Wales. Stjörnuspjald hans spáir samtvinnuðum röðum vandræða og erfið- leika, sem eiga muiiu sér stað og enda ná til sjálfs hásætisins. (Leturbr. hér.) DAGRENNING 13

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.