Dagrenning - 01.10.1948, Page 34

Dagrenning - 01.10.1948, Page 34
„Ég veit ekki betur,“ sagði Nam-bok, „en að ég hafi líka ýmsar furðulegar sögur að segja. Og gjafir hefi ég,“ bætti hann við all- drýgindalega, er hann sá að félagar hans fóru að verða á báðurn áttum. Hann tók þá sjal upp úr bátnum. Það var hin mesta gersemi. Slíkur vefnaður og slíkir litir höfðu ekki sézt þar um slóðir. Hann breiddi það á herðar móður sinni. Allar konumar andvörpuðu af aðdáun. Og Bask-Wah-Wan gamla fór þegar að strjúka mislita kögrið og klappa sjalinu, og sönglaði af bamslegri kæti. „Hann hefir sögur að segja,“ tautaði Kú- gah garnli. „Og gjafir,“ sögðu konurnar. Opi-Kwan vissi sem var, að félagar hans voru sólgnir í sögurnar og sjálfur hafði hann óstjómlega löngun að heyra hvað Nam-bok hefði að segja. „Aflabrögðin hafa verið í góðu meðallagi,“ sagði hann spekingslega. „Við höfurn því nóg af lýsi. Kom því, Nam- bok, og við skulum gera okkur glaðan dag.“ Tveir menn tóku eintrjáningsfleytuna og háru hana upp að eldiviðnum. Nam-bok gekk við hlið Opi-Kwans og allir þorpsbúar í halarófu á eftir þeirn, nema nokkrar konur, sem dvaldist við að þukla á og strjúka sjal- inu hennar Bask-Wah-Wan gömlu. Menn voru yfirleitt fátalaðir á meðan á máltíðinni stóð, jafnvel þótt þeir gætu ekki að sér gert að skotra öðru hvoru eftirvænt- ingar- og forvitnisaugum til Nam-boks. Hon- um féll það illa — ekki svo mjög vegna þess, að honum væri í raun og veru á rnóti skapi að láta taka eftir sér öðrum fremur, heldur aðallega sökum þess, að þefurinn af sellýs- inu hafði gert hann lystarlausan, en hann vildi fyrir engan mun láta á því bera. „Neyttu matarins, Nam-bok, því að þú ert hungraður,“ sagði Opi-Kwan. Nam-bok lét aftur augun og tók handfylli sína af úldn- um fiski upp úr katli einum miklum, sem allir áttu sameiginlegan aðgang að. „Reyndu að gera þér gott af matnum,“ sagði móðir hans, „því að hraustir menn eru jafnan hungraðir." Hún tók einkar ólystug- an laxbita, makaði hann í sellýsi og rétti hann ástúðlega að hinum endurfundna syni sínum. Lýsið lak af bitanum. En þegar Nam-bok fann, að meltingar- færin rnundu ekki vera eins hraust og vön þessari kraftfæðu eins og á fyrri tárum, þá kom hann sér hjá því að eta meira, með því að fara að troða tóbaki í pípu sína. Hann kveikti svo í, og fór að reykja. Menn héldu þó áfram „borðhaldinu“ og horfðu á hann. Þeir voru færri, sem gátu hælt sér af því, að hafa nokkru sinni reynt að brenna hina dýrmætu jurt, jafnvel þótt þeir fengju ein- stöku sinnum ofurlítinn píring af einhverri hinni verstu tóbakstegund, sem til er, frá skrælingjunum, sem áttu heima fyrir norð- an þá. Kúgah gamli sat við hlið Nam-boks og lét hann skilja það á sér, að hann hefði ekkert á móti því að fá sér „reyk“. Nam-bok fékk honurn pípuna. Kúgah tók við henni fegins hendi og saug munnstykkið áfergis- lega lýsugum vörum. Þegar hann ætlaði að skila henni aftur, vildi Nam-bok ekki taka við henni. Hann kvaðst hafa upphaflega ætl- að að gefa Kúgah hana. Að endaðri rnáltíð sleiktu menn fingurgómana og kættust af örlæti Nam-boks. Opi-Kwan stóð upp og mælti: „Nú er veizlunni lokið, Nam-bok, og við viljum hlýða á sögur þínar um hina furðulegu hluti, sem þú hefir sáð. Menn létu ánægju sína og tilhlökkun í ljós og settust umhverfis þá með vinnu sína. Sunrir karlmennirnir skeftu spjót, aðrir skáru út rostungstennur. Sumar konumar skófu spik úr selaskinnum, aðrar eltu skinn og enn aðrar saumuðu skinnfatnað með sinasíma. Nam-bok leit yfir hópinn. Hann hafði hugs- að sér heimkomuna allt öðru vísi. í öll þessi ár, sem hann hafði flækzt úr einum stað í 32 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.