Dagrenning - 01.04.1951, Side 5

Dagrenning - 01.04.1951, Side 5
fjármálaráðherra. Ilvar eru þessir menn nú? Sir Stafford lét af embætti á s. 1. sumri, og er talinn algerlega þrotinn að heilsu. Bevin lét af utanríkisráðherraemb- ætti f\'rir skömmu, þrotinn að heilsu, og er nú látinn, og nú er sjálfur forsætisráð- herrann í .sjúkrahúsi, — heilsulaus. Margur mundi spyrja: Er þetta einJeikið? Jafnaðarmannaflokkurinn er sýnilega að missa tökin á stjómmálum Bretlands, enda mun hans hlutskipti, frá forsjónar- innar hendi, sérstaklega hafa verið að leysa upp hið foma breska heimsveldi, til þess að breska þjóðin losnaði úr tengslum við hin heiðnu stórveldi, sem Bretar höfðu á undanförnum öldum lagt undir sig, svo sem Indland, Egiptaland, Persíu og fleiri ríki. Þetta Idutverk hefir stjórnin líka leyst prý'ðilega af hendi, því Bretland hefir nú „gefið frelsi": Indlandi, Pakistan, Pales- tínu, Ceylon, afsalað sér öllum réttind- um í Kína og er nú að missa áhrifaaðstöðu sína í Egiptalandi, Iran og Irak (Persíu). Það er því tæpast lengur þörf fvrir stjóm þessarar tegundar. Nú riður breska sam- veldinu mest á að fá stjórn, sem getur stað- ið með Bandaríkjamönnum að því að bvggja upp hið nýja samband ísraelsþjóð- anna, sem búa umhverfis norðanvert Atl- antshaf — Atlantshafsbandalagið. Hinir „sjúku menn“ er nú stjóma Bretlandi hafa brátt lokið hlutverki sínu. Þeirra aðstaða hefir verið erfið — miklu erfiðari en al- mennt er vitað, því þeir hafa, án þess að gera sér það fvllilega ljóst, orðið að lúta í lægra haldi fvrir hinum sameiginlega erkióvin mannkvnsins — alheimsauðvald- inu og alheimskommúnismanum. MAC ARTHUR. í desembcrhefti Dagrenningar (29. h.) var vikið að átökunum í Kóreu og afstöðu ýmissa ráðandi manna til Mac Arthurs hershöfðingja í Japan, sem stjómað hefir hernaðaraðgerðum „Sameinuðu þjóð- anna“ í Kóreu. Þar stóð þetta m.a.: „Nú er hafinn mikill áróður bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum gegn Mac Arthur og þess verður ekki langt að bíða, að hann „hverfi“ af sjónarsviðinu." Morguninn 11. apríl s. 1. barst sú fregn út um heiminn, að Truman forseti hefði þá um nóttina vikið Mac Arthur frá öllum störfum, sem hann hefir gegnt fyrir Sameinuðu þjóðirn- ar og Bandaríkin. Kemur þessi ákvörðun forsetans vonum seinna því vitað er að margir áhrifamenn bæði í Evrópu og Asíu, sem halda að tak- ast megi að semja við hin kommúnisku stórveldi — Rússland og Kína — hafa talið Mac Arthur þránd í götu slíkra samn- inga. Nú mun það fullráðið, að Banda- ríkin fallist á að svíkja Sjang Kaj Sjek og veita kommúnistastjóm Kína sæti hans hjá Sameinuðu þjóðunum. Mac Arthur er ekki sá fyrsti af hershöfðingjum Banda- ríkjanna, sem hinn sameiginlegi óvinur mannkynsins — alþjóðaauðvaldið og al- þjóðakommúnisminn — ryður úr vegi. Vera má að nú bíði þessa mikla hershöfð- ingja sörnu öriög og Forrestals landvama- ráðherra að verða úrskurðaður brjálaður og „detta síðan út um glugga", og ekki er að efa það, að „Sameinuðu þjóðimar" muni launa honum dygga þjónustu með þeim hætti, að reyna að koma honum fyrir kattamef, sé þess nokkur kostur. En hver er þá sök Mac Arthurs? Hún er sú ein, að hann vildi fá heimild til þess að DAGRENNING 3

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.