Dagrenning - 01.04.1951, Qupperneq 21

Dagrenning - 01.04.1951, Qupperneq 21
hin útvalda þjóð Drottins dvelur í ör- yggi og vernd meðan á hinum miklu úr- slita átökurn stendur. Að voru áliti er sannleikur fólginn í öllurn þessum skoðunum. í fyrsta lagi: Orrustan á þessurn degi rétt- látrar reiði Guðs, mun ná um allan heim, eins og Jeremía segir (25—33.): „Og þeir, sem Jahve hefir fellt, munu á þeim degi liggja dauðir frá einum enda jarðarinnar til annars. Þeir munu eigi vera hannaðir, eigi safnað saman og eigi jarðaðir; þeir skulu verða að áburði á akrinum." I öðru lagi: Þó að átökin muni ná um all- an heim, þá sýnir spádómur Esekiels, að úr- slitaorustan mun verða háð í Palestínu. „Land ísraels" sem talað er um í 37. og 39. kapítula hjá Esekiel getur ekki verið Bretland eins og sumir álíta, því að bæði það, sem á undan er farið og það, sem á eftir kemur, sýnir annað. Þó að Bretland sé annað land ísraels í dag, þá sýnir Esekiel blátt áfram í 37. kap. 25. versi, að hið séistaka Jand ísra- eJs, sem átt er við er Jandið, sem Jakob var gefið, og hver heilvita maður veit að var ekki BretJand. Einnig er í kapitulanum á undan (36:17—20) sýnt fram á, að „land ísraels“ er landið,þar sem ísraelsmenn bjuggu fvrir útlegðina, sem vissulega er heldur ekki Bretland. Þetta er jafnaugljóst í næstu köfl- um þar á eftir (40. kap.), sem lýsa vígslu hins fræga „Esekielsmusteris" í þessu landi ísra- els, og nefna velþekkt landfræðileg heiti í Palestínu, svo sem ána Jórdan til dæmis, og hvert meðalgreint skólabarn veit, að Jórdan er ekki í Bretlandi. í þriðja lagi: Hinir rétttrúuðu álíta, að Harmageddon þýði vemd, frelsun og sigur hins góða yfir því illa, — sigur Krists yfir Sat- an, „og það mun verða, að hver sá sem ákall- ar nafn Drottins mun frelsaður verða." „Leit- ið Drottins allir þér hinir auðmjúku, þér sem brevtið eftir hans boðorðum. Ástundið rétt- læti, ástundið auðmýkt, vera má að þér verð- ið faklir á reiðidegi Jahve.“ Hvenær getum við vænzt þess, að þetta allt komi fram? Jesú talaði þannig, er hann spáði fyrir þessum þrenginga tímum: „Og þegar þér sjáið, að þetta tekur að koma fram þá réttið úr yður og lyftið höfðum yðar því að lausn yðar er í nánd. Sannlega segi ég yður, þessi kynslóð mun eigi liða und- ir lok, unz þetta allt kemur fram.“ Nú er það almennt viðurkennt, af mönnum, sem hafa kynnt sér Biblíuna, að „kynslóð“ tákn- ar í Biblíunni 40 ára tímabil. Fvrri heims- styrjöldin hófst 1914 og með henni kom fvrsta lausnin árið 1917, en það var lausn Jerúsalem úr höndum heiðingjanna, sem Jes- ús hafði sagt fyrir, ásanrt fleiru er hann mælti: „þegar þetta tekur að koma fram“. Kvnslóðin, sem hefur göngu sína 1914 hverfur af sjónar- sviðinu 1954, og sú, senr byrjar 1917, endar sín 40 ár 1957. í Konungssalnum og Neðanjarðarsalnum í Pýramídanum mikla eru sýnd úrslitin, sem Jesús talar um í hinurn mikla spádómi sín- um, og það er athyglisverð staðreynd, að loka ártalið í Konungssalnum er 1953, eða einu ári á undan 1954, en síðasta ártalið í Neðanjarðarsalnum er 1956, en það er einn- ig einu ári á undan ártalinu 1957, sem áður er nefnt. Eins og öllum er það ljóst nú, að það revnd- ist rétt, sem sagt var fyrir urn ártölin þegar „þetta tók að koma fram“ — 1914 — 1917 — mun það og reynast rétt, að endalokin verði þegar 40 ár frá þessum tíma eru liðin og áð- ur en 40 ára kynslóðin frá þeim tíma líður undir lok, ]i. e. árin 1954—1957. Bæði Pýramídinn og Biblían opinbera oss 1955—1956 sem lokaárið er allt það muni fullkomlega fram komið, sem sagt er fyrir í hinum mikla spádómi Drottins vors, og þá muni þess vegna ljúka þrengingatímanum og „orustan á hinum mikla degi Drottins“ DAGRENNiNG 19

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.