Dagrenning - 01.02.1952, Blaðsíða 9
— 1952 —
Áríð fyrír aldaskiítíii
ÁRAMÓTASPÁR.
Við hver áramót spyrjum vér íslendingar:
Hvað boðar nýárs blessuð sól? Og nú við
þessi áramót hafa flestir ef til vill spurt þess-
arar spumingar með meiri kvíða og ákveðn-
ari þrá um svar, en margoft áður.
Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Tn'ggve
Lie, flutti aðaldarríkjum þeirrar stofnunar
nýársboðskap í lok ársins sem leið. Hann ætti
að vera allra manna gleggstur ,,\’eðurspámað-
ur“ á hinum pólilíska vettvangi, stöðu sinn-
ar vegna. Nýársboðskapur hans var þessi:
„Hættan á nýrri heimsstyrjöld liggur
eins og mara á öllum þjóðum. Eina ráðið
til að forða þeirri hættu frá er að samtök
„Hinna sameinuðu þjóða“ geti starfað
eins og til var ætlast í fv'rstu og vonir stóðu
til.“
Þegar þetta var mælt var þingi Samein-
uðu þjóðanna 1951, enn ekki lokið.
Merkasta verk þess var að stofna nýtt ríki í
Afríku — konungsríkið Libyu, sem verða
mun eitt af ríkjum þeim, sem öruggast fvlgir
Rússum þegar þeir ráðast á Vesturlönd. —
Bretar og Frakkar unnu ljósmóðurstörfin
við stofnun þessa nýja ríkis, og hafa — ásamt
Bandaríkjunum — lofað að sjá því fvrir nægu
skotsilfri fyrst um sinn, en ein fyrsta stjórn-
arathöfn þessa nýja „lýðræðisríkis“ var að
lýsa yfir að það mundi viðurkenna Farúk
Egyptalandskonung sem konung yfir Súdan.
Slík var þess fyrsta ganga, og má ætla að
hinar aðrar verði eftir því.
\hlliam Foster varautanríkisráðherra
Bandaríkjanna sagði m. a. í áramótaboðskap
sínum:
„Næstu tólf mánuðir munu verða hættu-
legasta tímabil í sögu vestrænna þjóða.“
Hann skýrði einnig frá því, að borist hefðu
áreiðanlegar upplýsingar um „stórkost-
legan og hraðvaxandi hernaðarundirbún-
ing af hálfu Sovietríkjanna og fylgiríkja
þeirra."
Bjartsýnastur þeirra, sem birtu áramóta-
hugleiðingar, var hinn aldurhnigni forsætis-
ráðherra Breta, Winston Churchill. Hann
sagði 6. desember s. 1.:
Þegar ég lít til baka til nokkurra síðustu
ára fæ ég ekki séð að hættan á þriðju
heimsstyrjöldinni sé eins mikil nú, eins og
hún var 1948, þegar Berlínardeilan stóð
sem hæst.“
En þetta var mælt áður en Churchill fór
til Bandaríkjanna. — Ef til vill hugsar hann
eitthvað öðru vísi eftir þá för.
Þessi ummæli nægja til þess að sýna and-
rúmsloftið í veröld vorri. Flestir búast við
að þriðji og síðasti þáttur hinnar miklu
alheims eyðileggingar sé nú fyrir dyr-
DAGRENNING 3