Dagrenning - 01.02.1952, Blaðsíða 16

Dagrenning - 01.02.1952, Blaðsíða 16
manns er í þjónustu þessa njósnakerfis, sem óljósa hugmynd hefir um að svo sé. í næstu heftum Dagrenningar verður þessu stórkostlega njósnakerfi lýst nokkuð og því verður ekki frekar að því vikið hér að þessu sinni. í Bandaríkunum er ekki starfandi neinn opinber kommúnistaflokkur eða til- svarandi samtök, heldur er starfið svo að kalla allt leynilegt og rekið innan hinna flokkanna og rnjög vel skipulagt. Þar eins og annarstaðar er það stefna kommúnista að láta njósnara sína komast í mikilsverðar trúnað- arstöður hjá ríkinu og þýðingarmiklum fvrir- tækjum. Stórkostlegastar eru þessar njósnir í utanríkisþjónustunni og atómvopnafram- leiðslunni, flughernum og sjóhernum. En auk þessara leynilegu njósnahringa er hið liálf opinbera og al-opinbera njósnakerfi, sem starfrækt er af sendisveitum Rússa og lepp- ríkja þeirra og af starfsliði þeirra hjá Samein- uðu þjóðunum, sem aðsetur hefir í Bandaríkj- unum og nýtur þar margháttaðra forréttinda fram yfir þegna Bandaríkjanna sjálfra. Baráttan gegn þessum njósnasveitum er mjög örðug enda sýkir hún nú allt stjórn- málalíf Bandaríkjanna og hatrið rnilli manna og flokka er ekki hvað minnst sprottið af þeirri tortn'ggni, sem þessi njósnastarfsemi skapar. Truman forseti og Acheson utanríkis- ráðherra vilja gera sem rninnst úr þessari njósnastarfsemi, en standa þar rnjög höllum fæti vegna þess, að alltaf er að komast upp um njósnir og njósnara í þýðingarmiklum stöðum og starfsgreinum. Með þessum liætti hafa Sovietríkin raun- verulega hafið innrás sína í Bandaríkin nú þegar, því þeirra bardagaaðferð er í öllum löndum og allsstaðar hardagaaðferð liögg- ormsins: slægð, lýgi og grinnnd. Með land- ráðaflokkum sínum og skipulagðri njósna- og glæpastarfsemi eru allar stofnanir þjóð- anna Rrst sýktar en að þvi búnu gerð vopnuð innrás í löndin undir einhverju yfirskini, eða glæpaflokkur sá, sem Sovietríkin starf- rækja opinberlega í landinu, er studdur til valdatöku. Bandaríkjamenn hafa ekki varað sig á þessari bardagaaðferð og vilja ekki trúa henni rnargir hverjir ennþá. Bandaríkjamenn eru ung og hrekklaus þjóð, sem hefir lifað einangruð alllengi og er þess vegna að ýmsu líkt ástatt hjá þeirn eins og íslendingum, enda er sama sagan hér: allt gegnsýkt og maðksmogið, rússadindlar og njósnarar á hverju strái. FORSETAKOSNINGARNAR í BANDARÍKJUNNM. Forsetakosningamar, sem fram eiga að fara í nóvemberbyrjun í haust, munu setja svip sinn á allt stjórnmálalíf Bandaríkjanna á þessu ári, og ástæðan er fyrst og fremst sú, að hörð átök fara nú fram í Bandaríkjunum um utanríkisstefnu þeirra, en síðan 1940 hafa báðir flokkamir — Demokratar og Repu- blikanar — haft svo að kalla sömu stefnu í utanríkismálum þótt þá hafi greint allmjög á um innanríkismál. Ekki er enn fullráðið hverjir verða í kjöri sem forsetaefni, en margt bendir til að það verði Truman af hálfu Demokrata en Eisen- hower af hálfu Republikana og er það þá í fvrsta sinni um langan tírna sem sigumonir Republikana liafa verið fult svo rniklar eða meiri en hinna. FRIÐARSTEFNAN. Það er fremur örðugt fvrir Evrópumenn að átta sig á því hver eru aðal ágreiningsmál hinna tveggja flokka í Bandaríkjunum að því er utanríkismálin snertir. Þó eru nokkur atriði allgreinileg: 1. Varðveisla friðaríns hefir verið og er aðalmál Demokrata. Truman forseti hefir 10 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.